Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1954, Side 36

Kirkjuritið - 01.05.1954, Side 36
226 KIRKJURITIÐ engir fundið það betur en fermingarbörn hans, og hefi ég ekki heyrt hlýrri né lofsamlegri orð um fermingarföður en hann. Sá ekki Kristur hann koma til sín? Hann var sívaxandi maður í prestsskap sínum, og urðu honum falin meiri og meiri störf á því sviði: Framkvæmdir fyrir Barnaheimilissjóð Þjóðkirkjunnar, prófastsstörf í Kjalarnesprófastsdæmi, formennska í Prestafélagi Suður- lands og stjórnarstörf í Prestafélagi fslands. Var hann síðustu árin varaformaður þess og einhver hinztu störf hans því helguð. Mér er vel kunnugt um það, að hann vann öll þessi störf af mikilli prýði og lifði í hvívetna eftir orðunum fögru: „Hvorki skal ég á þessu níðast og á engu öðru, því er mér er til trúað.“ Reyndist hann mér svo, að hann varð mér því kærari og ég mat hann því meir sem ég átti nánara samstarf við hann. Síðastliðið sumar ferðuðumst við saman til Gautaborgar á mót prestafélaga Norðurlanda, og ég mun aldrei gleyma, hve góður sam- ferðamaður og félagi hann var. Já, vissulega er söknuður vor allra mikill, er þekktum hann og áttum samstarf við hann og horfum nú á opið og ófyllt skarð. En hér skal þó ekki flytja neinar harmatölur, heldur skulu minning og þökk vera huggun vor. Og hvers er þá sérstaklega að minnast? Þess að hann var maður, sem engin svik bjuggu í, traustur, einlægur í guðrækni sinni, starfi og lífi — barns- lega hjartahreinn. Vér fundum þetta öll, starfsbræður hans og sóknarböí’M, sem hann nefndi jafnan svo, ástúðlega, og einkum þó kona hans og börn og systkin og aðrir ástvinir og vanda- menn. „Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla.“ En nálægðin getur einnig gjört það. Og um þá menn er enn meira vert. Þegar æfistarf er unnið af þeirri alúð, sem séra Hálfdan prófastur vann sitt, þá tryggir það blessun þess og að ávextirnir verða miklir og góðir. I þeim djúpa skilningi

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.