Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1954, Síða 39

Kirkjuritið - 01.05.1954, Síða 39
BÆKUR UM KRISTINDÓMSMÁL 229 ins heiðni, sem þó er í raun og veru gömul og hafði gengið sér til húðar löngu fyrir allan kristindóm, og leitaðist við að sýna fram á, hvernig kristindómurinn ætti með breyttum starfsaðferðum að geta mætt hinu nýja viðhorfi og fullnægt stórum betur trúarþörf manna heldm' en öll skurðgoð efnis- hyggjmmar. Nú hefir erkibiskupinn ritað aðra bók um ensku kirkjuna °g vandamál hennar (The Church of England To-day, Lon- don, Hodder and Stoughton 1953. 3 s 6 d), þar sem gripið er á líkum efnum. 1 þessari bók er eigi aðeins lýst með glöggum hætti megineinkennmn ensku kirkjunnar og ástandi hennar í dag, heldur er hún fyrst og fremst miðuð við það að vera til leiðbeiningar um starfið í framtíðinni, og er í henni marg- ar góðar bendingar að finna. Þetta er eins konar andleg erfða- skrá duglegs kirkjumanns, sem nú er að því kominn að fá starfið öðrum í hendur, en vill gera þá hluttakendur í þeim reynsluauði, sem hann hefir safnað. Enska kirkjan er um margt ólík íslenzku kirkjunni, bæði hvað snertir kenningar og skipulag. Er hákirkjustefnan mjög kaþólsk í öllum kenningum, en leggur þó megináherzlu á hina ytri siði. En í heild sinni verður enska kirkjan að teljast mjög rúmgóð og mnburðarlynd í trúarefnum, og ekki vilja enskir kirkjumenn annað heyra en að rannsóknarfrelsi og skoðanafrelsi sé nauðsynlegt í guðfræðilegum efnum sem öðr- um, og dregur Garbett enga dul á það, að nauðsynlegt sé að samþýða trúarkenningar kirkjunnar almennum vísindum og hugsunarhætti vorra tíma, eins og þetta var gert á dögum Alexandríu-guðfræðinna r og Tómasar frá Aquinó. En þó vill erkibiskupinn halda sem fastast í gömul játningarrit, enda þótt hann verði við það að kannast, að stór hluti manna, sem kirkju sækir, hvað þá aðrir, trúa lítt ýmsu því, sem þar er staðhæft. Er eitthvað athugavert við þau vísindi, sem spreng- lærðir menn geta með engu móti talið alþýðu manna á að trúa, og virðist mér biskupinn helzt skorta skilning á þessu, að það er hin úrelta dogmatik kirkjunnar, sem fælir hugsandi rnenn mest frá henni. Menn fella sig engu betur við hinn miðaldalega hugsunarferil en menn mundu fást til að ganga hversdagslega í buxum af Páli postula. Að ytra skipulagi er kirkjan sjálfseignarstofnun, sem á

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.