Kirkjuritið - 01.05.1954, Síða 48
238
KIRKJURITIÐ
!• gr.
Stofna skal sjóð, er nefnist Kirkjubyggingasjóður. Hlutverk
sjóðsins er að veita þjóðkirkjusöfnuðunum vaxtalaus lán til
kirkjubygginga í sóknum landsins og til varanlegra endurbóta
á eldri kirkjum.
2. gr.
Ríkissjóður skal greiða í Kirkjubyggingasjóð kr. 500000.00
á ári næstu 20 ár.
Stjórn sjóðsins skal skipuð þrem mönnum. Biskup landsins
á sæti í stjórninni og er formaður hennar, en tveir stjórnar-
menn skulu kosnir af Synodus til þriggja ára í senn. Reikn-
ingar sjóðsins skulu birtir í Stjórnartíðindum.
3. gr.
Ekki má veita lán úr sjóðnum samkv. 1. gr., nema teikning
að kirkjubyggingu eða endurbót eldri kirkju hafi verið sam-
þykkt af þriggja manna nefnd, er í skulu eiga sæti biskup
landsins, húsameistari ríkisins og þriðji maður, sem kirkju-
málaráðherra skipar. Árlegar tekjur kirkjunnar skulu vera
til tryggingar láninu. Lánsupphæðin miðast við stærð kirkju
og má nema allt að kr. 200.00 á hvern teningsmetra, þó aldrei
meiru en kr. 1000.00 á hvern ferm. gólfflatar. Byggingarlánin
endurgreiðast með jöfnum árlegum afborgunum á 50 árum-
Til endurbóta eldri kirkna má eigi veita hærri lán en sem
svarar % kostnaðar, samkvæmt reikningum, sem biskup úr-
skurðar. Lánin endurgreiðast á 50 árum með jöfnum afborg-
unum.
4. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. jan. 1955.
BráSabirgSaákvœSi.
Endurgreiða skal úr Kirkjubyggingasjóði vexti af lánum
þeim til kirkjubygginga og endurbóta eldri kirkna, er tekin
hafa verið eftir árslok 1945, enda sanni kirkjureikningar, að
lánin nemi ekki stærri hluta af byggingar- og viðgerðarkostn-
aði en sagt er í 3. gr.
Eins og kunnugt er, báru þeir alþingismennirnir Andrés
Eyjólfsson og Sigurður Óli Ólafsson fram frumvarp þetta og
hafa þeir ásamt ríkisstjórninni stutt að framgangi þess. Lögin
munu vafalaust verða þjóðkirkju Islands til mikilla heilla á
komandi árum.