Kirkjuritið - 01.01.1956, Blaðsíða 42
Kristilegt æskulýðsfélag
stofnað á Siglufirði
Kristlegt æskulýðsfélag var stofnað í Siglufjarðarkirkju sunnu-
daginn 13. nóv.
Guðsþjónustan hófst kl. 2. Höfðu safnazt saman væntanleg-
ir Æskulýðsfélagar og gengu inn í kirkjuna, meðan forspil var
leikið, undir tveim íslenzkum fánum, sem piltur og stúlka báru.
Næst á eftir þeim gekk félagsforinginn, sem þegar hafði verið
valinn. Hann heitir Páll Helgason og á heima í Lindarbrekku.
Æskulýðsfélagar settust á innstu bekki kirkjunnar, að undan-
teknum félagsforingja og fánaberum, sem settust inn í kór. Þeg-
ar allir voru setztir, var sunginn sálmurinn: „í fornöld á jörðu
var frækorni sáð“.
Síðan fór guðsþjónustan fram á venjulegan hátt, og steig sóknar-
presturinn, séra Ragnar Fjalar Lárusson, í stólinn og ávarpaði
æskulýðsfélagana og annað æskufólk, og hafði hann að texta
Matt. 13, 45—46, og mælti hann m. a. á þessa leið:
„Kæru ungu vinir.
Einhverju sinni heyrði ég eða las um mann, sem óvænt hafði
erft mikla fjárhæð, margar milljónir dala. Hugsið ykkur, hve
mikið gott væri hægt að láta af sér leiða með alla þá peninga
í höndum. En það er víst ekki mikil hætta, að þú eða ég fáum
slíka fjárhæð í hendur. En Guð hefir gefið sérhverjum æsku-
manni fjársjóð, sem er margfalt meira virði en margar milljónir
dala, fjársjóð, sem margur auðkýfingur vildi gefa aleigu sína
fyrir. Veizt þú, hver sá fjársjóður er? Þið eigið hann öll, æsku-
fólkið, sem hér er statt í dag. Þessi f jársjóður er æska þín. Æsk-
an hefir stundum verið nefnd vor mannlífsins. Og öll vitum við,
að vorið er indælt. Hvert skref, sem þú stígur þá, á að liggja
fram, þú getur æ meira, veizt meira, skilur meira. Lífið blasir