Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1956, Blaðsíða 14

Kirkjuritið - 01.01.1956, Blaðsíða 14
4 KIRKJURITIÐ Fyrir hálfri öld hófst ungmennafélagshreyfingin hér á landi og barst ört út á næstu árum bæði um kaupstaði og sveitir. Þá snart nýr andvari vors og sumars hjörtu æskumannanna. Hrifn- ing fór eldi um hugina líkt og á tímum Fjölnismanna, Jóns Sigurðssonar og fylgjenda hans. Ættjarðarástin brann þeim í brjósti og heilög hugsjón blasti við. „íslandi allt“ var kjörorð þeirra. íslandi vildu þeir lifa og deyja. Fyrir nokkru átti ég viðtal við einn þessara manna. Hann sagði: Já, þá spurði ungu mennirnir: Hvað getum við gjört fyrir ísland? Nú spyrja þeir: Hvað getur landið gjört fyrir mig? Nú eru nautnir og skemmtanir efstar í hugum margra. Þá lifði orðið „hugsjón" á tungu og í sál æskumannanna. Nú heyrist það varla nefnt á nafn. Svipað má segja um orðið frelsi, sem eitt sinn táknaði það, er mönnum var helgast og þeir þráðu mest. Nú er spurt: Hvar á ég að velja mér stöðu í stjórn- málaflokki til þess að liafa sem mest gagn af? Eða hvað vill flokkur minn, að ég gjöri? Ég fellst á skoðanir hans og fylgi þeim, a. m. k. læt ég ekki annað í ljósi. Þeir eru ófáir, sem selja frum- burðarrétt sinn fyrir baunaskammt eins og Esaú forðum. Þeim gleymist það, að sannleikurinn einn gjörir mennina frjálsa, en án lians glata þeir dvrustu eign sinni: Einn spyr, livað rétt sé, einn um haguaðinn. Annar er frjáls maður. Þræll er hinn. Þó hæfir ekki, að eldri kynslóðin felli þungan dóm yfir hinni yngri, nema hún kveði hann jafnframt upp yfir sjálfri sér. Því að hvernig höfum vér hin eldri búið í haginn fyrir yngri kynslóðina? Og skortir ekki báðar meira og minna það, er mestu varðar: öruggan áttavita siðgæðisins á vandrataðri hættuleið, sem fram- undan er? Vér megum ekki villast út á alls konar refilstigu ófarnaðar, heldur þreytum þolgóðir skeið það, sem oss er fyrir sett — af Guði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.