Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1959, Síða 20

Kirkjuritið - 01.12.1959, Síða 20
450 KIRKJURITIÐ Gott er til þess að vita, að þessum málum hefir þokað mikið fram síðan, enda þess orðið enn meiri þörf. Starfar hér nú málleysingjaskóli, sem getið hefir sér góðan orðstír og sóttur er hvaðanæva að af landinu. Hefir hann komið mörgum sem séra Páll forðum til góðs þroska og opnað nemendunum marg- víslegar atvinnuleiðir. En í þessu sambandi get ég ekki varizt að spyrja enn: Hvað líður stofnunum til hælis og bjargar útilegufólkinu og stúlk- unum, sem lent hafa á villigötum? Þeirra er svo mikil þörf, að ekki má dragast lengur að koma þeim á fót. Það er háski og þjóðarskömm að greiða ekki tafarlaust betur úr þeim málum en gert hefir verið að þessu. „Konan, sem mér hefir fundizt mest til um“ heitir grein eftir Ingemar Glemme um Marie Jacobsen, danska hjúkrunarkonu, sem nú rekur barnaheimili í Djubeil í Líbanon. Sá staður hét Byblos til forna, og er orðið samstofna við heiti Biblíunnar. „Stóramamma hjá Ararat“, eins og I.G. kallar hana, fór fyrir 52 árum (1907) heiman úr Danmörku þangað austur, til hjúkrunar og annara líknarstarfa meðal Armena. En eins og kunnugt er, hófu Tyrkir grimmilegar ofsóknir á hendur þeim laust fyrir síðustu aldamót. Stóðu þær síðan lengi og voru hin- ar ægilegustu. Talið er, að 1,5 milljónir eða um þrír fjórðu hlutar kristinna Armena hafi látið lífið áður en ósköpunum linnti. Tiltölulega mjög fáir keyptu sér líf og grið með því að afneita Kristi og játa Múhameðstrú. Marie vann fyrst við lítið sjúkrahús í Harpoot. Daglega bar ótrúlega hluti fyrir augu hennar, einkum í byrjun fyrri heims- styrjaldarinnar. Armenskir karlmenn voru eltir uppi, pyntaðir og drepnir með hryllilegum hætti, konur þeirra og dætur sví- virtar, börnin stundum rotuð að mæðrunum ásjáandi, oftast hrakin á verðgang og ofurseld eymd og hungurdauða. Marie naut þess að vera útlendingur, undir danskri og amerískri vernd. Hún gerði það, sem hún gat, einkum börnunum til verndar. Safnaði nokkrum þeirra saman í húsarústum, þar sem Armenar höfðu áður búið, en Tyrkir látið greipar sópa um allt og kom- ið öllu kviku fyrir kattarnef. Eymdin var ofboðsleg. Mörg börn bar hún daglega til grafar. Oft lá henni við að gefast upp, og eitt kvöldið, þegar lítill hnokki kom og sagði: ,,Ég vil fá að

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.