Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1959, Page 22

Kirkjuritið - 01.12.1959, Page 22
452 KIRKJURITIÐ Árið 1918 var svo komið, vegna sjúkdóma og margs konar þrenginga, að Marie sá sér ekki annað fært en leita til yfirfor- ingja tyrkneska hersins í grenndinni og segja honum frá þessu starfi sínu og skora á hann að sýna miskunnsemi og bjarga því, sem bjargað yrði. Þá vildi henni það tvennt til happs, að hún var víðkunn fyrir hjúkrunarstörf sín meðal hermannanna, og herforinginn, sem þá fór þarna með völdin, var skynsamur mannúðarmaður. Hann sagði, er Marie hafði lokið máli sínu: „Hvers vegna komstu ekki fyrr. Þú hefir bjargað lífi ótal manna minna. En lika annað og meira. Þú hefir sýnt mér í verki þann kærleika, sem þessi Kristur ykkar talar um, en ég hefi svo sjaldan séð nokkur dæmi um. Mér þykir því vænt um að geta nú unnið dálítið mannúðarverk eftir öll þessi til- gangslausu morðverk undangenginna ára, sem aðeins hafa ver- ið til ills og eyðileggingar og eru því valdandi, að við erum að tapa stríðinu. Það er eingöngu kærleikurinn, sem gagnar framtíðinni. Skipa þú, ég skal hlýða.“ Marie Jacobsen er nú 78 ára og víðkunn austan hafs og vest- an. Þessi voru lokaorð hennar við sænska blaðamanninn: „Allir tala um hugrekki mitt. En finnst þér vera unnt að ræða um hugrekki, þegar um ekkert er að velja? Börnin þörfn- uðst mín. Ég átti afar litlar undankomuvonir. Og Guð var með mér. Hann gaf mér óbrotnar fyrirskipanir og rak hræðslu mína á flótta.“ . . . Með þessari mynd Kristsáhrifanna og Kristsfylgdarinnar óska ég öllum lesendum Pistlanna gleðilegra jóla! Þakkir. Nú, þegar dr. theol. Ásmundur Guðmundsson, fyrrv. biskup íslands, lætur að eigin ósk af ritstjórn Kirkjuritsins, er brotið blað í sögu þess. Hann hefir ekki aðeins verið ritstjóri þess frá upphafi — eða í tuttugu og fimm ár — heldur mótað það mest að efni og formi. Enginn einn maður hefir heldur ritað neitt viðlíka mikið í það og hann. Alla, sem kynna sér það, mun undra, hve miklu hann hefir afkastað á þessum vettvangi, og hefir þetta þó jafnan verið aðeins eitt af hans aukastörfum. Gildi þess verður hér hvorki vegið né metið, en skylt er þess að geta, að ævinlega mun dr. Ásmundur hafa tekið sára lítið,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.