Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1959, Page 24

Kirkjuritið - 01.12.1959, Page 24
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík sextugur. Sumarið 1899 voru hér á ferð tveir höfuðklerkar úr íslend- ingabyggðum vestan hafs, þeir séra Jón Bjarnason og séra Friðrik J. Bergmann. „Glöggt er gestsaugað" segir málshátt- urinn, og sáu líka þessir tveir aðkomu- og áhugamenn úr presta- stétt, að harla mörgu var hér ábótavant, hvað kirkjuna og mál- efni henrar snerti. Ekki kenna þeir embættisbræðrum sínum hér um það ófremdarástand, heldur óhæfu skipulagi, áhuga- lausum yfirvöldum og sinnuleysi fólks yfirleitt. í Reykjavík voru þá orðnir um 6000 íbúar. Lætur séra Jón þess getið, að dómkirkjupresturinn og sá eini í bænum hafi svo mikið að gera, að hann verði að vinna eitthvert aukaverk hvern dag allan ársins hring. Síðan segir hann: „Að hlaða öllum þessum aukaverkum á einn mann í ofanálag á prédikunarstarf hans, barnauppfræðing og allt annað, sem að sjálfsögðu heyrir prests- embættinu til, það er fávíslegasta óvit. Reykvíkingar ættu sannarlega að vera þess umkomnir að halda eina þrjá presta og launa þeim sómasamlega. En því fer svo fjærri, að nokkuð þvílíkt hafi þótt í mál takandi að undanförnu, að hinn fjöl- menni söfnuður dómkirkjunnar hefir jafnvel ekki séð sér fært að hressa við hina auvirðilegu og eyðilögðu girðing utan um grafreitinn sinn.“ Ferðasaga séra Friðriks er merkisbók: „ísland um aldamót- in“. Þar lýsir hann prestastefnunni íslenzku með svofelldum orðum: „Fyrirkomulagið á synódus er líka alveg óhafandi. Þar eru tveir forsetar, annar fulltrúi veraldlega valdsins, amt- maðurinn, hinn fulltrúi kirkjunnar, biskupinn. Amtmaðurinn stýrir umræðum ... hann hefir hið eiginlega forsetavald. Bisk- upinn er þar fyrir hönd kirkjustjórnarinnar til að segja álit sitt um þau mál, sem rædd eru. En það vald, sem hann er full- trúi fyrir, kirkjan, er þarna á sínu eigin þingi eins og skuggi

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.