Kirkjuritið - 01.12.1959, Page 28
458
KIRKJURITIÐ
því ekki komin upp fyrr en í árslok 1903. Þá var séra Lárus
hættur prestskapnum, en séra Ólafur Ólafsson tekinn við. Hann
var einnig þegar frægur klerkur, er hann varð fríkirkjuprestur.
Og eftir að kirkjan var fúllgerð, sem hann sjálfur vígði 22. febr.
1904 og var síðan messað í hvern helgan dag, þá fór óðum að
fjölga í söfnuðinum. Bæði var það, að allmargir bæjarbúar
höfðu á sinni tíð viljað fá séra Ólaf að Dómkirkjunni, þegar
embættið losnaði 1889. En landshöfðingi og biskup höfðu ekki
viljað setja hann á kjörlista, þrátt fyrir áskoranir þeirra.
Margir þessara velunnara séra Ólafs munu nú hafa gengið í
Fríkirkjuna og einnig margt af því fólki, sem flutti í bæinn
austan úr sveitum og verið hafði sóknarbörn hans. Prestur
hafði hann áður verið í Selvogi, Holtaþingum og Ölfusi. Sjálfum
segist honum svo frá í minningaritinu: „Imugusturinn og mis-
skilningurinn, sem áður hafði bólað á ekki svo lítið, eyddist
og hvarf eins og næturþokan fyrir morgunsól; góð og vingjarn-
leg samvinna hófst á milli þjóðkirkju- og fríkirkjuprestanna;
studdu þeir hvor annan og réttu hvor öðrum bróðurhönd í
öllu starfi, og hefir svo jafnan verið.“ Sókn varð svo mikil í
hina nýju kirkju, að sama árið og hún var fullsmíðuð, var
ákveðið að lengja hana nærri því um helming. Hún var 20
álnir á lengd og 18 á breidd og kostaði 18.000 kr. Bæta skyldi
nú við hana 15 álnum, hvað gert var á næsta ári eftir upp-
drætti Rögnvalds Ólafssonar, og kostaði sú viðbót 12.500 kr.
Séra Ólafur vígði hana í 2. sinn 12. nóv. 1905. Alltaf stækkaði
söfnuðurinn. Þegar séra Ólafur lagði niður prestskap við Frí-
kirkjuna hér 1922 og séra Árni Sigurðsson var kosinn, voru
4000 manns á kjörskrá. Var þá farið að tala um, að stækka
þyrfti kirkjuna enn. Og 1924, þegar söfnuðurinn var 25 ára,
var það gert í 2. sinn og í það form, sem hún nú hefir. Bætt
var við hana myndarlegum kór, steyptum, og hvelfing hækk-
uð um 5 álnir eða upp í 15. Um 1100 manns rúmar hún í sæti
og er það langmesta, sem nokkur kirkja og samkomuhús hér
á landi tekur. Hallgrímskirkjan fyrirhugaða á aðeins að fara
fram úr henni um 100 manns. Uppdrátt að þessari breytingu
og stækkun Fríkirkjunnar gerði Einar Erlendsson húsameist-
ari, en yfirsmiður var Sigurður Halldórsson, sem síðan var um
langt árabil formaður safnaðarstjórnar. Séra Ólafur vígði hina
endurbyggðu kirkju í 3. sinn 21. des. 1924. Hann var þá að vísu