Kirkjuritið - 01.12.1959, Page 29
KIRKJURITIÐ 459
hættur þjónustu fyrir 2 árum, en sjálfsagt hefir þótt, að hann
vígði hana í þetta sinn, eins og áður.
Séra Árni Sigurðsson var kosinn fríkirkjuprestur 23. júní
1922 og vígður 27. júní. í hans prestsskapartíð (1922—1949)
hélt söfnuðurinn enn lengi áfram að vaxa og náði þá því fjöl-
menni, sem hann hefir mest haft. Séra Árni hafði líka flest
það til að bera, sem glæsilegan klerk má prýða — útlit, gáfur
og lærdóm. Hann var og raddmaður ágætur og gat prédikað
af tilfinnngahita ekki síður en forveri hans — þó með öðrum
hætti. Hann stofnaði 1942 kristilegt félag ungra manna Frí-
kirkjunnar og hélt fundi með þeim annan hvern sunnudag
yfir vetrarmánuði, en barnaguðsþjónustu þess í milli. Föstu-
messur flutti hann um alla langaföstu á miðvikudagskvöldum.
Þegar séra Árni féll frá, mjög um aldur fram, 1949, þá mun
hafa verið í söfnuðinum á 9. þúsund manns. Við prests-
kosninguna í byrjun árs 1950 voru 5000 á kjörskrá. En þar
höfðu kosningarétt allir, sem orðnir voru 15 ára. Þannig mun
einnig hafa verið, þegar séra Árni var kosinn 1922. Allir, sem
búa innan lögsagnarumdæmis Reykjavikur, Seltjarnarneshrepps
og Kópavogsbæjar, hafa rétt til að vera í Fríkirkjusöfnuðinum
— ef þeir vilja, og um allt þetta svæði er hann dreifður nú.
Þau sinn, sem fjölgað hefir verið prestaköllum á þessu svæði,
1941 og 1952, hefir smávegis kvarnast úr honum. Þó eftir
ástæðum furðu lítið. Og aftur hefir bætzt í skörðin. Mesta
skarðið, sem komið hefir í hann, var eftir kosninguna 1950.
Þá var Óháði söfnuðurinn stofnaður, svo sem kunnugt er. f
hann munu hafa gengið um 600 manns úr Fríkirkjunni. Nú
eru í henni um 7500 og fer fjölgandi. Síðan kirkjan sjálf var
fullgerð, eins og hún nú stendur, var næsta stórátakið, sem
söfnuðurinn gerði, að kaupa til hennar þýzkt pípuorgel 1926.
Það kostaði 44 þúsund krónur og er enn talið mesta hljóðfæri
sinnar tegundar hérlendis. Segja fróðir menn, að svona löguð
orgel verði með aldrinum hljómfegurri og fínni, líkt og góðar
fiðlur. Sama ár varð Páll ísólfsson organisti við kirkjuna og
var það til 1939. Þá tók Sigurður bróðir hans við. Hann er
organisti nú og verður vonandi enn lengi. Fyrsti organistinn
var föðurbróðir þeirra, Jón Pálsson (1903—15), næsti var
Pétur Lárusson Halldórssonar fríkirkjuprests (1913—19), og
sá þriðji Kjartan Jóhannesson (1917—26). Allir hafa þessir