Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1959, Blaðsíða 33

Kirkjuritið - 01.12.1959, Blaðsíða 33
KIRKJURITIÐ 463 merkur, frú Lehtonen fyrir hönd Finnlands, Anna Bjarnadóttir fyrir hönd íslands og frú Smemo fyrir hönd Noregs. Því næst flutti Olov Hartman, forstjóri Sigtuna-stofnunarinnar, snjallt og mjög fróðlegt erindi. Aðalviðfangsefni fundarins átti að vera bœnin, og klukkan 15 flutti Johannes Múller skólastjóri frá Danmörku erindi, sem hann nefndi „Bænin, leiö vor til Guðs“. Á þrepunum að íþrótta- salnum var ég stöðvuð af tveim ungum stúlkum, sem kváðust vera fréttaritarar frá Svenska Dagbladet, og kváðust vilja fá upplýsingar um ísland og þátttöku þess í mótinu. Árangur- inn af þessu viðtali sá ég ekki fyrr en löngu seinna. Grein þeirra um ísland var stutt, en í öllum aðalatriðum rétt. Á dagskrá mótsins, sem gefin hafði verið út fyrir fram, stóð, að fimmtudag 20. ágúst kl. 7,30 skyldi vera íslenzkt kvöld (Islandsafton). Ég hafði skrifað frú Brilioth fyrirspurn um þetta, en fengið fremur óákveðið svar. Á mótinu á Nyborg Strand 1956 hafði ég flutt stutt erindi um Hallgrím Pétursson. Núna bjó ég mig til vonar og vara undir að flytja erindi um Matthías Jochumsson. 1 Sigtuna sannfrétti ég, að „Islands afton“ var á dagskrá kvöldsins. ísland var eina landið, sem slík kvöldvaka var ætluð, og eini þátttakandinn frá Islandi var ég. Um morguninn hafði frú Brilioth sagt, að við skyldum ræða saman um íslandskvöldið eftir hádegi, en einhvern veg- inn fórumst við á mis. Mér gekk því seint að fá að vita, hvar og hvernig íslandskvöldið ætti að fara fram. Loks frétti ég, að það ætti að vera í aðalkirkju borgarinnar, Maríukirkjunni. Þangað er alllöng leið, og fóru flestar þangað fótgangandi. Ég var svo heppin að vera tekin upp í bíl á miðri leið. Maríu- kirkjan er stór og fögur gömul kirkja. I þetta sinn var hún aðeins upplýst með kertaljósum. Frú Brilioth spurði mig, hvort ég vildi flytja bæn, en ég skoraðist undan því, og flutti hún hana sjálf. Því næst var sunginn sálmur, gömul sænsk prests- kona, frú Murray, mælti nokkur orð, og svo hófst erindi mitt. Fyrst átti ég að flytja það fyrir neðan gráturnar, og var það óþægilegt, því ég hafði engan stað fyrir bækur mínar og blöð. En brátt var kvartað undan því, að ekki heyrðist til mín, og var mér þá sagt að fara upp í prédikunarstólinn. Ekki hafði ég haldið, að það ætti fyrir mér að liggja að stíga í stólinn í virðulegri sænskri sóknarkirkju — né reyndar í nokkurri ann-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.