Kirkjuritið - 01.12.1959, Síða 34
464
KIRKJURITIÐ
Fulltrúar hinna 5 norrænu landa í Sigtuna.
Talið frá vinstri: Fru Josefsson (Hárnösand), Fru Ljungberg (Stokk-
hólmi), Fru Smemo, Fru Brilioth, Fru Lehtonen, Fru Fugisang-Dam-
gaard, og frú Anna Bjarnadóttir.
arri kirkju — og fann ég sárt til smæðar minnar og andlegr-
ar fátæktar. Mér fannst líka, að ég mundi hafa samið erindið
öðruvísi og vandað það betur, ef ég hefði vitað, að því mundi
ætlaður svo virðulegur staður. En nú varð ekki við snúið, og
varð ég að gera mitt bezta. Ég treysti á ljóð séra Matthíasar,
ef mér aðeins tækist að gera þeim sæmileg skil. Það var miklu
þægilegra að tala úr prédikunarstólnum, og hátíðlegt var að
horfa út eftir kirkjunni, sem var þéttskipuð áheyrendum og
upplýst af lifandi ljósi ótal kerta, stórra og smárra.
Ég lauk erindi mínu með því að fara með þjóðsönginn okk-
ar, ,,Ó, guð vors lands“, fyrst á dönsku og svo á íslenzku. Að
því loknu lék organistinn lagið á orgel kirkjunnar. Það var
hátíðleg stund. Að erindinu loknu var mér ásamt um 20 öðrum