Kirkjuritið - 01.12.1959, Side 35
KIRKJURITIÐ
465
konum boðið til kaffidrykkju hjá Mannerfeldt lækni, en heim-
ili þeirra hjónanna er í mjög fögru gömlu húsi, fullu af lista-
verkum og dýrgripum, með fögrum garði, sem hallar niður
að Málaren. Af svölum hússins var dásamlegt útsýni yfir skóg-
ana og vatnið í tunglsljósinu.
Föstudaginn 21. ágúst stjórnaði frú Sylvía Wirén frá Hels-
ingfors biblíuhugleiðingu. Var erindi hennar snjallt og mjög
veigamikið. Að því loknu ókum við í mörgum stórum bilum
til Stokkhólms. Okkur var ekið um borgina þvera og endi-
langa, en aðeins staðnæmzt á þrem stöðum. Á Ersta Diakoniss-
anstalt var snæddur hádegisverður og hlýtt á erindi um starf
og hag stofnunarinnar. Á þjóðminjasafninu var skoðuð hin
fagra kirkjudeild, og þar flutti þjóðminjavörðurinn, Bengt
Thordersen, erindi, er hann nefndi: Altari og tilbeiðsla („altare
och tilbádjan"), sögulegt yfirlit, en dómkirkjuorganistinn, Gott-
hard Arnér, lék á hið forna orgel. Þá var skoðaður Milles-
gárden með dásamlegu útsýni yfir borgina og vatnið (Málaren).
Þegar „heim“ var komið til Sigtuna, flutti frú Ruth Björk-
quist erindi, er hún nefndi „In memoriam“, frábærlega fagurt
og hugnæmt erindi um fallvaltleik lífsins og minningu hinna
látnu. Þykir mér sennilegt, að hún hafi öðrum þræði haft frú
Brilioth í huga, ér hún samdi þetta erindi.
Laugardag 22. ágúst stjórnaði frú Heidi Olsen frá Noregi
biblíuhugleiðingu. Var erindi hennar með afbrigðum þrótt-
mikið og bar vitni um djúpa persónulega trúarreynslu. Klukk-
an 14,30 flutti „pastor primarius" Olle Nystedt, erindi, er hann
nefndi „Bænin, leiö Guðs til vor“. Að loknu erindinu var Sig-
tuna-stofnunin skoðuð. í hallargarðinum flutti Olov Hartman
mjög fróðlegt erindi um stofnunina, sögu hennar, markmið og
störf. Svo skoðuðum við bókasafnið og sýningu á saumuðum
og ofnum kirkjugripum (altarisklæðum, altarisdúkum, hökl-
um o. fl.), sem var haldin þar þessa daga.
Um kvöldið var farið í siglingu á Málaren til Skokloster. Var
það löng sigling (um 2 klukkustundir hvora leið, að því er mig
minnir) og yndisfögur, fyrst í rósbjarma sólarlagsins, síðar í
silfurskini mánans. Ekki var tími til að skoða höllina né hin
merkilegu söfn, sem þar eru, en það var gengið til kapellunnar,
og þar flutti frú Falck bæn, og svo voru sungnir sálmar á
öllum norðurlandamálunum. Á efnisskránni var sálmurinn
30