Kirkjuritið - 01.12.1959, Blaðsíða 39
Innlendar bœkur,
Menn og minningar eftir Valtý Stefánsson. Bókfellsútgáfan
1959.
Bókfellsútgáfan hefir gefið út margar ágætar bækur á und-
anförnum árum, þar á meðal eru Merkir íslendingar, Ævisaga
Sigurðar Ingjaldssonar frá Balaskarði, og tvær bækur, er
geyma viðtöl Valtýs Stefánssonar við fjölda merkra manna:
Þau geröu garöinn frœgan og Myndir úr þjóölífinu. Hér kem-
ur þriðja bók Valtýs af líku tagi og aftast í henni er nafna-
skrá yfir öll bindin. Er skemmst frá því að segja, að þetta er
úrvalsbók, sem vex þeim mun meir að gildi sem tímar líða.
í stuttu en snjöllu máli bregður höfundurinn á skemmtilegan
hátt upp lifandi myndum af fjölda kunnra manna, sem sumir
eru nú gengnir undir græna torfu. Eru þessar ágætu svip-
myndir bæði mikil og margvísleg persónusaga og jafnframt
skýrar og merkilegar þjóðlífsmyndir. Þessi síðasta bók, sem
geymir 50 þætti, er að því leyti frábrugðin hinum fyrri, að
hér eru nokkrar greinar af merkum viðburðum, svo sem 100
ára afmæli Jóns Sigurðssonar, sem höfundur var sjónar- og
heyrnarvottur að sjálfur. Ennfremur tvær minnngargreinar.
Myndir fylgja þáttunum, og er bókin mikil prýði. Óneitanlega
fáar nýjar bækur girnilegri, hvort heldur til fróðleiks eða
skemmtunar, jafnt ungum sem öldnum. Það er því vafalaust,
að þessi bók verður ekki aðeins mikið keypt, heldur þaullesin.
Oscar Clausen: Á fullri ferö. Bókfellsútgáfan 1959.
Þetta eru æskuminningar höfundar, sem er léttur í máli og
hefir frá ýmsu að segja. Sumir þeir verzlunarhættir, sem hann
lýsir, eru nú úr sögunni, og líka kominn annar sveitarbragur
en þá var þarna vestra og annars staðar. Skemmtilegast þótti
mér að lesa frásagnirnar um marga góða búhölda og merkis-
konur. Mest fannst mér samt til um þáttinn af Margréti á
Hamraendum. Manni birtir fyrir augum og hlýnar um hjarta-