Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1964, Page 7

Kirkjuritið - 01.05.1964, Page 7
KiUKjuniTin 197 röska tvo áratugina farið að dæmi strútsins, er stingnr nefi sínu í sandinn. Þeir virðast ekki hafa fylgzt með atburðum þeim hinum miklu, er gerzt hafa á þessu tímaskeiði. Eða livort mun þeim gleymd hin ófrýna og vígtennta ófreskja Nazismans, sú er nm skeið sýndist ætla að ráða lögum og lofum í álfu vorri? Hverj- ir voru það, sem fyrstir bentu á og vöruðu við nazistahættunni ? Það voru einmitt kirkjunnar menn, og þar fremstur í flokki hinn ótrauði baráttumaður frelsis og mannúðar, þýzki kenni- niaðurinn Martin Niemöller. En þýzka þjóðin har því miðui ekki gæfu til að hlýða raust þessara rnanna. Þess í stað ól hún illyrmið við brjóst sér unz það hafði tekið risavexti, og hyrlað öllum mannheimi þann bikar böls og ómældra þján- inga, sem seint mun að fullu tærndur. — Nazistarnir þýzku voru heldur ekki lengi að uppgötva frá hverjum þeim stóð mesta haettan. Það var frá kirkju Krists og fulltrúum liennar. Kirkjan var vissulega stærsti þröskuldurinn á vegi þess, að liin illu og djöfullegu áform liinnar lirokafullu helstefnu, gætu orðið að veruleika. Þess vegna vai nú skeytunum heint að kirkjunni og þjónum hennar. Og með því liefst einn svartasti kapituli í sögu trúar- ofsókna, er um getur allt frá tíð hinna heiðnu og grimmlyndu, rómversku keisara. Sá dökki kapituli segir og frá því, liversu mannhelgin, kærleikslögmálið og allar góðar dyggðir voru sví- virtar og troðnar í svaðið af bófaflokki Nazismans. Hvaða ódæmi ollu því, að ein fremsta menningarþjóð álfu vorrar, þýzka þjóðin, var slegin sh'kri blindu, leiksoppur svo glórulauss ofstækis og mannfyrirlitningar? Skýringin er að minni liyggju sú ein, að fyrir innan gl jáfægða °g áferðarsnotra yfirborðsmenningu þessarar þjóðar, leyndist rot, fúi, ýlda. Og inn að þeim óhroða var skemmra en flesta grunaði. 1 hraðstígri þróun þessarar þjóðar til velferðarríkis hafði gleymzt að taka eitthvað með. Og þetta „eitthvað var það nauðsynlegasta af öllu, ekkert annað en mannúðar- og kærleiks- ^lllgsjón kristindómsins. Ekki svo að skilja, að þjóðin hafi opin herlega varpað trú sinni fyrir borð, heldur reyndist ekki knstin samvizka þýzku þjóðarinnar sú aðvarandi raust, sá liirtingar- vöndur, er megnaði að hindra hlóðug áform hins harðskeytta

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.