Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1964, Síða 22

Kirkjuritið - 01.05.1964, Síða 22
Bjarni Sigurðsson: Nýjar sóknarstöðvar Fram eftir ölduni eignaðist kirkjan margvíslega starfskrafta utan prestastéttarinnar, sem efldu liana með atliöfn sinni- Klaustramenn voru vitaskuld álirifamestir í þeim liópi. Hér a landi liefur starf þeirra verið talið eittlivert merkasta, sem hef- ur verið unnið íslenzkri menningu. 1 klaustrum stóð sagnagerð með hlóma, þar voru ópennalatir rnenn, sem skráðu og endur- rituðu margan staf, sem síðan rann sem stoð undir samtíð og framtíð. En þó að menningarlegt hlutverk klaustramanna verði ekki vefengt, má ekki láta sér sjást yfir, að þeir lutu aga kirkjunnar og voru þjónar liennar fyrst og fremst. Hlutverk þeirra í þágu Guðs kristni í landi var veigamest. Vafalaust væri kirkjunni mikill styrkur að starfi klaustranna enn á 20. öld, ef þau væri við líöi og liefði verið sniðin við liæfi okkar tínia. Það einfalda dæmi sýnir, hve kirkjan er miklu snauðari að starfskröftum utan prestastéttarinnar en hún áður var. Nú ætla ég ekki að hvetja lesendur, ef einhverjir eru, til að axla sín skinn og ganga í klaustur. Hins vegar vildi ég minna menn á, að frá siðskiptum liefur starfslið kirkjunnar sífellt minnkað og gengið saman. Sú virðist liafa verið ríkjandi skoð- nn nteð stjórnvöldum, að þjóðarnauðsyn bæri til að fækka prestum. Fyrir þeirri stefnu hefur kirkjan orðið að beygja sigi með því að hún var rænd öllum eignum sínum við upphaf hins nýja siðar. En oft gefst vel að leita nýrra sóknarstöðva, þegar ofurkapp hefur verið lagt á að vinna liinar, sem gamlar eru og viðurkennd- ar. Kirkjan liefur um of verið í varnarstöðu um starfsmanna-

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.