Kirkjuritið - 01.05.1964, Page 26
216
KIRKJUItlTIÐ
gengt fleiri félagsstörfum, þannig hef ég verið lengi formaSur
í búnaðarfélagi hrepps míns, ég sat um tuttugu ára skeið á Bún-
aðarþingi, sýslunefndarmaður var ég frá 1919—1962. Oddviti
hef ég verið síðan 1923 og lireppstjóri frá því 1938. Þá lief ég
verið í öllum fasteignamatsnefndum, nema þeirri fyrstu, og er
nú formaður hennar í N.-lsafjarðarsýslu.
Það skal vottað liér af þeim, sem átti þetta viðtal við Pál í
Þúfum, að liann er áhugasamur safnaðarfulltrúi og lætur sig
aldrei vanta á héraðsfundi prófastsdæmisins, er hann liefur tök
á. Vegna setu á Fjórðungsþingi Vestfjaröa hefur liann vantað
einu sinni síðan 1955, að ég tók við prófastsstörfum hér. Og góð
og glögg eru skil hans á kirkjureikingum sóknar sinnar.
Hvert er viðliorf ])itt til nútíðarinnar og aldarandans, eftir
svo snögg umskipti, sem orðið Iiafa í þjóðh'finu og við þekkjum
svo vel. Hefur þú getað áttað þig á þeim?
Mér þykja skemmtileg og ánægjuleg mörg þau umskipti, sem
orðið liafa í þjóðlífinu á minni ævi, þótt segja megi, að sunit
hafi flotið burt í leysingum umskiptanna undanfarin ár, sem
æskilegt liefði verið að liahla. Þetta er að liafa skipt frá örbirgð
til hjargálna, á sumum sviðum til allsnægta. Hér hefur í þeim
efnum fimbulvetur orðið að víkja fyrir vorþey og gróanda, sem
ég veit að margt gott muni leiða af sér, landi og ])jóð lil velfarn-
aðar. Og ég her þá von í brjósti, æsku þessa lands til lianda, að
lienni auðnist „að marka og draga í land“ á ný þau verðmæti,
sem skapað liafa festu í þjóðlífinu og sem eru að niínum dónu
|)ess verð, að þeim sé haldið við, efla þau og styrkja og græða a
nýjan leik á þjóðlífsmeiðin, svo þau megi bera blöð til að skýhi
og blóm og fræ til viðhalds góðum og nytsömum gróðri. Og vil
ég vænta þess, að kirkjan megi bera gæfu til þess að efla og
styðja sanna trú í landinu, sem veiti blessun og öryggi hverjuni
þeim, sem liennar leitar í vanda daglegs lífs, og að luin verði
Ijósið, sem lýsir hér í heimi og inn í lönd eilífðarinnar.
Telur þú þig ekki gæfumann í einkah'fi þínu og sambandi
við störf þín?
Jú, ég tel mig það. Ég átti góða og elskuríka foreldra og lilaut
])ví gott uppeldi og eignaðist þá konu, Björgu Andrésdóttur fra