Kirkjuritið - 01.12.1965, Síða 34
464
KIRKJURITIÐ
þekkja auðæfi stað’arins möguleika Iians, gera sér vonir um
að þetta sé ekki nema uppliaf mikilla framkvæmda. í tillögum
og greinargerð Reykliólanefndar, sem áður er getið, er drepið
á ýmislegt, sem til mála gæti komið að stofna og reka á
Reykliólum eins og t.il. mjólkurbú, gróðurliús og garðyrkju-
skóla, sumardvalarheimili og ferðamannaþjónustu, gæruflokk-
un og ullarþvott, vélaverkstæði, þaravinnslu, niðursuðu á
kræklingi, framleiðslu á súputeningum og e. t. v. fleira.
Má af jiessari upptalningu sjá, að mörg úrræði hafa nefnd-
inni komið í hug um eflingu atvinnurekstrar á staðnum til
hagnýtingar liinna fjölhreyttu náttúrugæða. Um framkvæmd-
ir á þessum ráðagerðum er )>að lielzt að segja, að húið er að
steypa upp liús fyrir mjólkurbú. Hinsvegar er óvíst hvort
verður af stofnun búsins, þar sem lientara niun þykja, að
Austur-Barðstrendingar flytji mjólkina lil Búðardals. Ætli
það að vera kleift með bættum samgöngum. En bvað sem
kemst í framkvæmd af fyrrgreindum ráðagerðum, þá er liitt
víst, að mikla framtíð eiga Reykhólar fyrir sér þar sem tæknin
og framtakið tekur höndum sanian um að nýta auðævi þessa
Iieita staðar.
Þótt kirkja liafi staðið á Reykliólum síðan á dögum Ólafs
belga, var þar ekki prestssetur fyrr en 1948. Þar situr, eins og
fyrr segir, prófastur Barðstrendinga Þórarinn Þór og frú bans
Ingibjörg Jónsdóttir. Þangað er gott að koma því að mikil
gestrisni og liógvær gleði sitja þar í liásæti. Auk síns eigin
prestakalls þjónar prófastur líka Flateyjarbrauði síðan sr.
Lárus Halldórsson fór þaðan. Hefur liann því alls 5 kirkjur, auk
Staðar á Reykjanesi, sem niun nú vera sameinuð Reykhóla-
sókn. En bér er mikið’ strjálbýli og víða fámennt, svo að alls
eru í söfnuðunum uni 500 manns.
A Reykbólum staiula tvær kirkjur, sú nýja tveggja ára göm-
ul, vígð 8. sept. 1963 inikið bús og veglegl á áberandi stað. Hún
tekur um 120 manns í sæti. Gamla kirkjan, um aldargömul,
stendur neðar og norðanvert á liólunum og lætur lítið yfir sér.
Stæðilegt timburhús með virðuleik og mildi ellinnar í hverj-
um drætti, bæði að utan og innan. Yfir kór er dimmblár þétt-
stirndur himinn, altaristaflan gæti lieitið: Úr steinþró djúpri
stígur... eða eitthvað þess Iiáttar. Það er upplileypt mynd af