Kirkjuritið - 01.12.1965, Side 39
KIRKJURITIÐ
469
Hér skal aðeins nefna fáeina heimskunna Jesúíta á vorum
dögum: Vísindamaðurinn Teilliard de Chardin, skrifaði marg-
ar bækur til sönnunar því að saman gætu farið trú og vísindi.
„Fyrirbrig&ið maSur^ er þeirra útbreiddust. Lengi voru rit
þessa mikla gáfumanns á bannskrá, en nú er honum af sumum
b'kt við Pál postula. Hann lézt 1955.
Karl Rahner, guðfræðiprófessor í Múnchen var í fyrra á
sextugsafmæli sínu sæmdur lieiðursávarpi, undirrituðu af 15
kardínálum, 21 erkibiskupi, 145 hiskupum og 414 liáskólakenn-
urum í ýmis konar fræðum. Hefur Rahner ritað fjölda hóka.
Sumir Jesúítar fai-a sínar eigin götur í starfi sínu. Svo er
um lýðtalarann ])ýzka, Jóliannes Leppich, sem lilotið hefur
viðurnefnið „hátalari Drottins“. Hann hlífist ekki við að nefna
hlutina sínum réttu nöfnum og liclla vandlætingu sinni yfir
liáa og lága, enda stundum skrúfað fyrir liann á æðri stöðum.
Aquin prestur í Montreal ekur um sem leigubílstjóri og
tekur liann menn til altaris út um gluggann, ef svo ber undir.
Þannig liafa Jesúítar fvrr og síðar leitað allra leiða til að
ná marki sínu og geta seilst til áhrifa á alla menn í hvaða stétt
eða starfi, sem er.
Lengst af liafa þeir verið sakaðir um að tilgangurinn helgi
meðalið, en ekki mun sii setning liafa verið af þeim mótuð.
Hitt er óneitanlegt, að margir þeirra liafa gripið til ólíklegustu
ráða og brugðið sér í margs konar gervi til að koma ár sinni
vel fyrir horð.
Oftast liafa þeir einnig verið álitnir mestu afturlialdsseggir
kirkjunnar. Börðust síðast á öldinni sem leið fyrir kennisetn-
ingunni um óflekkaðan getnað Maríu og yfirlýsingunni um
óskeikulleik páfans.
Nú gerast þau tíðindi, að það óvænta frjálslyndi og sú ótrú-
lega víðsýni, sem einkennir kirkjuþingið mikla í Róm er þökk-
uð Jesúítum. Þeir hafa mest barizt fyrir því að trú og skoðana-
frelsi væri viðurkennt og að kærleikur kirkjunnar ætti að ná
lil allra inanna, livar og hverjir, sem þeir væru.
Þar hafa þeir Bea og Arrupe staðið fremstir í flokki. Ralmer
liefur einnig fengið að túlka þær skoðanir sínar að fyrst og
fremst eigi að leita sannleikans og að því verði að taka, sem
liann leiðir í ljós, Iivort sem það kemur heim eða brýtur í
hág við kenningar kirkjunnar á fyrri öldum.