Kirkjuritið - 01.10.1966, Síða 16
350
KIRKJURITIÐ
Það er algjörl öfugmæli í munni langflestra þeirra að kalla
sig servus servorum, þjón þjónanna. Drotnunargirni, hégóma-
girnd, mammonshyggja, harðstjórn, umburðarleysi, hlutdrægni,
ósáttfýsi og annað Jiessu skilt, eru algengustu auðkennin.
Glæpamaðurinn Alexander VI. er samt einstæður.
Tvennt telur höfundur páfunum mest til gildis: baráttu
Jieirra fyrir uppliafi og eflingu kirkjuríkisins, og stuðning
þeirra við menntirnar, sérstaklega listirnar.
Um fyrra atriðið verður varla sannara sagt en Jiað, að til
Jiess er að leita liöfuðróta meinsemda páfadómsins. Kristnin
galt en naut ekki þeirrar „hugsjónar“. Það er grátlegt til Jiess
að vita að sjálfir páfarnir æstu ekki einungis menn lil ófriðar.
Það kom fyrir að Jieir stjórnuðu sjálfir herferðum. Þvílíkt og
annað eins er ekki kristindómur.
Stuðningurinn við listirnar er aftur á móti mjög lofsverður
að vissu marki. En óneitanlega hefði ýmsum páfum verið
skyldara að leggja meira fé fram til útrýmingar fátækt og eyind
alls f jöldans, heldur en sóa ógrynni fjár í ólióflegar kirkjuhallir,
hvað Jiá sjálfum sér til dýrðar með giillsaumuðum klæðum,
gimsteinakórónu og dýrum líkneskjum.
Ég er liér að tala um páfana en ekki Jiá andlegrar stéttar
menn, kajiólska svo og leikmenn, sem í nafni Krists helguðu h'l
sitt vaxandi mamibótum og sífelldri sannleiksleit. Og ég gleynU
ekki öllum Jieim óteljandi listamönnum, sem unnu verk sm
guði til dýrðar, livort Jieir lijuggu stein og niáluðu myndir, eða
ortu ljóð og settu saman sögur.
í hópi þeirra voru Jieir, sem endurvöktu fornmenninguna
og skópu nýja.
Þeir eru of sjaldan virtir að verðleikum.
En saga páfann skýrir Jiað, að þrátt fyrir líf Jieirra manna
og eins liinna, sem fyrir álirif Krists lifðu svo fögru og góðu
mannbfi að kalla má Jiá lielga í samanhurði við allan almenn-
ing, hefur kirkjan mætt andúð og jafnvel sætt ofsóknum í suin-
um löndum l’yrr og síðar. Hún hefur ekki eins hreinan skjöld
og skyldi.
Sú er hin mikla bót í máli að hinir síðustu páfar bera þa^
með sér að kaþólska kirkjan liafi liorfið af sínum villigötum og
lært að snúast betur við vandamálum hvers tíina.