Kirkjuritið - 01.07.1969, Síða 26
264
KIRKJURITIÐ
Hann lók við' af vini sínum og skoðanabróður Siguröi I’-
Sívertsen og reyndist eins einlægur í þjnustunni við stefnumál
félagsins og jafn kappsamur og ódeigur í baráttunni fyn i'
umbótastefnum prestastéttarinnar. Bæði þau er snertu bug-
sjónamál hennar og hagsmuni.
BáSir áttu til búliölda aS telja, en hvorugur skaraSi eld að
sinni köku, svo ég viti.
Víst er aS óeigingirni og fórnfýsi réSu skiptum þeirra viS
PrestafélagiS. Áhugi þeirra og barátta fyrir bættum hag
prestastéttarinnar spratt af þeirri sannfæringu, aS hún ga'ti
betur sinnt köllun sinni og komiS fleiru góSu til leiSar, ef
prestamir þyrftu ekki fyrst og fremst aS berja ofan af fyrir
sér meS búskap, eins og löngum hafSi tíSkast.
Fyrir og um 1920 voru prestslaunin rúrnar tvö þúsund
krónur á ári. Og þegar kreppan mikla skall á liöfSu prestarnir
ekki úr miklu aS moSa frekar en allur almenningur. Sálir
þeirra fylltust ekki aS meini af fégjöldum í þann tíS. Á síðari
stríSsárunum byrjaSi peningaveltan aS vísu og inngangurinii
í velferSarríkiS opnaSist. En þá bófst líka fólksflóttinn úr
sveitunum og vinnufólkiS hvarf aS kalla úr sögunni. Þá urou
prestarnir aS draga úr búskapnum. Fljótlega tók aS fjölg3
þeim prestaköllum, sem enginn vildi sækja um, þótt góðar
bújarSir væm í boSi, væri ekki kostur annarra hjástarfa en
búskapar, svo sem kennslu.
Prófessor Ásmundur var stéttvís maSur í þeim skilningi
liannvildi auka mennt og halda uppi virðingu prestastéttar-
innar. Hann taldi því bæði rétt og skvlt að liún bæri svipb'kt
frá horði og þær stéttir aðrar, sem líkt voru lærðar og gegndi*
ámóta ábyrgðarstörfum.
Hann vissi að þrír fá þokað því, sem einum er ofraun. Ha»11
gerðist því einn af frumlierjum Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja, átti þátt í mótun þess og sat í fyrstu stjórninni.
Saga Prestafélags Islands hefur verið rakin all ítarlega 1
Kirkjuritinu 1943 og 1968. Hér er því þarflaust að grein*1
nokkuð að ráði frá stjórnartíð Ásmundar.
En því fer fjarri að fjármál presta væru lionum lmgfólgnU'1
og að liann eyddi mestum tíma í að vinna að þeim. Á stjórnar-
ámm lians átti Prestafélag Islands lilut aS því, að prestum vaI
fjölgað í Reykjavík, þegar bærinn tók önun vexti. Barizt var