Kirkjuritið - 01.05.1970, Síða 16
206
KIRKJUUITIÐ
vililar oj; jjlaðlegrar ljúfmennsku í bæinn. Þetta fundu hinir
fullorðnu, en þó ef til vill ekki livað sízt börnin. Að lijörtuni
þeirra átti bann greiðan aðgang sakir ljúfmennsku sinnar og
hjartahlýju. Þetta hef ég fundið hjá ýmsu fullorðnu fólki liér
í prestakallinu, sem kynntist honum sem hörn.
Sr. Guðbrandur gegndi ýmsum störfum utan liins eiginlega
prestsemhættis. Hann var settur prófastur í Skagafjarðar-
prófastsdæmi fyrsta júlí 1934 og skipaður í það embælti 16.
júlí 1938 að undangenginni kosningu presta prófastsdæmisins.
Hann var í stjórn Guðbrandsdeildar Prestafélags Islands frá
stofnun liennar 1931 til 1952 og um skeið formaður. Hann var
í nefnd þeirri, sem sá um Hólahátíðir, sem haldnar voru á
liverju sumri á Hólum vegna hyggingar minningarturns Jóns
hiskups Arasonar. Hann var skólanefndarformaður um ára-
bil og átli einnig sæti í hreppsnefnd um skeið. 011 voru þessi
störf hans unnin af sömu skyldurækni og önnur, sem féllu i
hans hlut.
Páll postuli segir á einurn stað í bréfum sínum: Veriö í
hróðurkærleikanum ástúðlegir hver við annan. Verið glaðir,
ljúflyndi yðar sé öllum kunnugt. Þessi orð minna mig öðrum
fremur á sr. Guðbrand. Sr. Guðbrandur bar ekki utan á sér
neitt embættismanna snið að fyrri tíðar hætti. Hann var laus
við allan remhing, prúður, ljúfur og glaður var hann innan og
utan heimilis. Þannig mætli ég honum ávallt, er fundum okk-
ar har saman. Þetta er sú mynd, sem ég geymi um þennan
fyrirrennara minn í Viðvíkurprestakalli, yfiílboðara, starfsbróð-
ur og vin. Þannig mun og myndin, sem minningin geymir i
liugum sóknarbarna hans, samferðamanna og vina.
Tíminn líður. Kynslóðir koma og fara. Þetta er lögmál lífs-
ins. Einnig svið hins kirkjulega starfs. Andlát sr. Guðbrandar
kom engum á óvart. Heilsa hans var |»rotin fyrir nokkrum árum
og lífsljós lians logaði á veiku skari. Æviárin voru líka orðin
mörg. Lausnin mun því hafa veriö honum kær svo og ástvin-
um lians. En þótt sr. Guðbrandur sé horfinn af sjónarsviði
þessa lífs, varir minningin um góðan dreng. Kirkja Islands a
hér að haki að sjá einum sinna bezlu og trúustu þjóna. Fyrr-
verandi sóknarbörn minnast góðs prests, og vinar. Svo og aðrir
vinir og samferðamenn. Persónulega þakka ég hugljúf kynni
og margar góðar samverustundir, sem við hjónin höfum att