Kirkjuritið - 01.05.1970, Blaðsíða 23
KIRKJDRITIÐ
213
tunglskotanna mikilleika þeirra. Mannsandinn kemur við sögu
hvoru tveggja og bæði eru spegill aldarfarsins. Afleiðingar
þeirra eru líka auðráðnar: Tæknin því aðeins góð, að menn
kunni réttilega með hana að fara. En kynslóðin er svo liug-
spillt að tæknin er eins og sakir standa meira notuð til stríðs-
búnaðar og í þágu ágirndar og valda en til friðar og sam-
hjálp ar öllum þjóðum.
Því verður ekki neitað að flestir í vestrænum löndum, sem
skoða sig sjálfkjörna leiðtoga á menningarbrautinni, láta sem
þeir séu vaxnir upp úr kristindóminum.
En með það heimsástand fyrir augum, sem er fyrst og fremst
luótað af andkristnum anda verður að spyrja:
Eru ekki líkin í ánni orðlaus en átakanleg auglýsing þess,
hversu djúpt maðurinn getur sokkið — hann, sem þó hefur
mátt og möguleika til að stíga upp til stjarnanna?
Og er nokkurt ráð vænlegra til farsældar, frelsis og friðar,
en að menn læri að fylgja höfuðboði Krists: Allt það, sem þér
viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.“
Það getur enginn sagt að þetta sé óskiljanlegt — eins og nú
er í móð að tala um kristindóminn einkum af æskunni. -—
Ekkert er einfaldara. En því miður erum vér ekki meiri menn
en það, að oss skortir mikið á viljann til að framfylgja því
uokkuð verulega.
Leggjum ef til vill ekki mikið hugann að því, nema þegar
ver komumst ekki hjá því, eins og þegar líkin fljóta í ánni
^vrir augum vorum.
Kristni og kommúnismi
Aldarafmæli Lenins var 22. apríl sl. Yar þess rækilega minnst
hér £ fjöhniðlunartækjunum og með samkomulialdi eins og
víð'a um lönd. Allir verða að játa að hann var frábær að gáf-
U*U, mikill hugsuður, einstakur áróðursmaður, markviss skipu-
^eggjari og helgaði líf sitt hugsjónum sínum. Sennilega má
lelja liann mestan áhrifamann þessarar aldar og verður nafn
hans lengi uppi.
öeilan stendur um gæði og gildi kenninga lians. Rit hans
eru hiblía kommúnista og er hann bálfguð þeirra flestra.
'oninuistu andstæðingar hans telja liann verið hafa einn liinn
Uiesta óþurftarmann, sem um geti.