Kirkjuritið - 01.05.1970, Blaðsíða 33
KIKKJUIUTIÐ 223
J'æUir er sá grundvöllur, sem friður og heilbrigð samskipti
'Uarmanna þurfa að byggjast á.
Þó að kristin kirkja sé klofin í margar kirkjudeildir, þá
eru þær allar sammála um Jiað, að friðarliugsjónina beri að
efla, og að í skjóli friðar og bræðralags þurfi lífið að þróast
kér á jörðu.
Allar kirkjudeildir liafa friðarniál á stefnuskrá sinni og
a flestum kirkjuþingum eru ályktanir samþykktar, til þess að
kvetja menn til þess að starfa að friðarmálum og styðja Sam-
einuðu þjóðirnar í þeirra mikilvæga starfi.
Einstaka þjóðir eru komnar svo langt á þessu sviði eins og
h d. Norðurlöndin, að vart er hugsanlegt, að nokkru sinni
gæti komið til styrjaldar milli þessara þjóða!
Margt bendir til þess, að við verðum enn að reyna margt
°g bíða lengi, þangað til bugsjón friðarins verður að veru-
leika á þessari jörð, en kristinn maður hlýtur að vera bjart-
gýnn, af því að bann trúir á sigurmátt Guðs vilja í þessum
l'eimi.
Hver guðsþjónusta, liver helgistund á að vera spor í áltina,
að efla frið á jörðu.
Gamalt bænarvers
Gef [)ú kristni góðan frið,
ó Guð um allar tíðir,
|iví ekkert höfum annað lið,
einn þú fyrir oss stríðir,
sjálfur Guð vor sannur faðir.