Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1970, Qupperneq 47

Kirkjuritið - 01.05.1970, Qupperneq 47
KIRKJURIXIl) 237 ast. Er lieimsrás þessi er á enda runnin, mun liann lialda dóm og gefa þjónum sínum laun liins eilífa lífs, en láta óguðlega liljóta þann eld sem eilíflega brennur, er liann liefur upp- vakið alla þá, sem dánir eru og kvatt þá fyrir dómstól sinn. Þér lilægið sjálfsagt að þessum hlutum, lierrar mínir. Það gerðum vér kristnir menn líka fyrrum. Vér erum komnir úr yðar lióp. Menn fæðast ekki kristnir, lieldur verða þeir að gjörast það. Vrn helga Ritningu Spámenn eru þeir nefndir, sem boða kenningu Guðs. Spá- dómar þeirra, og þau kraftaverk, sem þeir gjörðu til að styrkja trúna á Guð, eru skrifuð í bækur, og auðvelt að kynna sér þær. Þaer eru sem sé ekki aðeins til á hebresku lieldur líka á grísku. Rit þessi eru ekki aðeins í liöndum kristinna manna, lieldur lesa Gyðingar þau upp opinberlega í öllum samkundubúsum sínum. Rit vor eru traust sakir aldurs síns, en það ber öllum saman um, að Jieim mun eldri sem beimildirnar eru, Jieim nnin betri séu þær. En engin rit yðar eru nándar nærri jafn- gömul Mósebókum og spámannaritunum. Enn betri vitnisburð- nr um sannleika Ritninganna er |>ó það, live J>au eru liáleit, beilög og koma heim við raunveruleikann. Þær lýsa heims- rasinni svo sem hún var og er. Og þær liafa sagt það fyrir, sem ver sjáum nú að á sér stað. Vér sjáum jörðina opnast og gleypa heilar borgir, vér sjáum liafið færa stórar eyjar í kaf, ver lítum styrjaldir sundra oss og ríkin eiga í deilum livert við annað. Hungur og pestir herja, bið lága er upphafið og liið báa niðurlægt, réttlætið nýtur sín sjaldnast en guðleysið færist i aukana, allt gengur úr skorðum og fer afvega. Sjá, Jietta er allt sagt fvrir í hinum guðdómlegu ritum! Það teljum vér sannleiksvott er spádómur rætist. Og er vér verðum þess askynja, að það Iiefur skeð og er alltaf að ske, sem Ritningin segir fyrir, J>á trúum vér því, að spádómar Ritningarinnar muni og rætast í framtíðinni. Fortíð, nútíð og framtíð er eitl °g bið sama fyrir anda spámannanna, er líta aRt í einni bend- nig. Það eru aðeins vér venjulegir menn, er greinum að tím- ntn, sem liðinn er, augnablikið, sem yfir stendur, og |>að, sem er ókomið. Framhald í næsta liefti.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.