Kirkjuritið - 01.05.1970, Blaðsíða 48

Kirkjuritið - 01.05.1970, Blaðsíða 48
lleykjavík, 20. maí 1970. Prestastefna íslands 1970 Prestaslefna íslands verður að forfallalausu Iialdin í Reykjavík dagana 23.—25. júní. 'Hún hefst með messu í Dómkirkjunni þriðjudaginn 23. júní kl. 10,30. Síra Pétur Sigurgeirsson, vígsliibiskup, prédikar. Gert er ráð fyrir, að prestar komi hempuklæddir lil messunnar, eins og venja er til. Sama dag kl. 14 hefjast störfin með bænagjörð og ávarpi biskups. Fundarstaður verður safnaðarsaliirinn í Hallgríms- kirkju, eins og í fyrra. Að loknu kaffihléi þennan (lag verður tekið fyrir aðalmál prestastefnunnar að Jiessu sinni, en Jiað er: Kristin frœftsla í skólum. Stuttar framsöguræður flytja: Olafur Haukur Árnason, deildarstjóri, sr. Leó Júlíusson, pró- fastur, sr. Guðmundur Þorsteinsson, sóknarprestur, sr. Helgi Tryggvason, námsstjóri. Þetta efni verður síðan rætt í umræðuliópum. Ber að miða að því, að prestastefnan marki kirkjunni ákveðna stefnu uin Jiað, livernig vinna skuli að Jiví næstu árin að treysta sess kristinna fræða í hinu lögbundna fræðslukerfi. Er mál Jietla sérslaklega timabært nú vegna þess, að fræðslumálin eru J endurskoðun. Fyrsta dag prestastefnunnar eru allar prestskonur og ekkjur jiresta boðnar í síðdegiskaffi í biskupsgarði, Bergstaðastræti 75. Ég vænti Jiess, að erlendur gestur synódunnar muni flylj11 guðfræðilegt erindi, en gel ekki greint nánar frá Jiví að svo búnix. Tvö synóduserindi verða flutl í útvarpi. Flytjendur þeirra verða Jieir dr. Björn Björnsson, prófessor, og sr. Jónas Gísla- son. Hittumst lieilir. Sigurbjörn Einarsson, biskup•

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.