Kirkjuritið - 01.05.1970, Page 50
KIUKJtJIUTIÐ
240
Síra Sigurður Iauk némi 1924 og vígð'ist þegar aðstoðarpreslur lil síra
Magnúsar í Vallanesi, en hlaut veitingu fyrir einbættinu 1925, er síra
Magnús var fluttur suður. Ríkissjóður keypti nú aftur þá % úr Vallanesi,
sem síra Magnús liafði eignazt, stórliýsið og útihúsin, er hann hafði reist,
og var nú Vallanes enn af nýju óskipt prestsetur, en Hjáleiga hyggð.
Síra Sigurður hélt embœttið eigi aðeins af mikilli samvizkusemi og þeim
starfsunaði, sem hækur votta, en af einlægni hins frjálslynda trúboðanda
og áhuga hins sanna drengs. Sem reisir merki köllunar sinnar, unz hann
sjálfur fellur, svo ungur.
Ómetanleg stoð hans í starfi var kona hans, frú Björg Jónsdóttir frá
Vaði, sem var þá og lengi síðan forsöngvari í báðum kirkjum. — Þeini
prestshjónunum varð auðið tveggja dætra, Bjarghildar og Oddrúnar, sem
háðar eru húsettar á Egilsstöðum.
Síðari maður frú Bjargar er Magnús Jónsson hóndi á Jaðri og með-
hjálpari í Vallaneskirkju. — HéraSstíðindi.
Hinn 16. apríl sl. lézt á heimili systurdóttur sinnar á Egilsstöðum Einar
Pétursson meðlijálpari Kirkjubæjarkirkju í Hróarstungu og safnaðarfull-
trúi Kirkjuhæjarsóknar.
Hann var fæddur á Galtastöðum fremri 28. marz 1896, missti móður
sína í frumbernsku og föður sinn fermingarvor sitt. Hann var gæddur
uiiklum námshæfileikum, sem fátæktin bannaði lionuin að nota, trú og
áhuga til prestsskapar, sem því gat ekki orðið af. En að skilningi „hins
almenna presldóins“ lifði hann og starfaði. Hann var góður fræðari og
huggari, laðaði að sér hörn og bágstadda. Naut virðingar allra, scm hann
þekktu.
Einar Pétursson dvaldi alla æfi í Hróarstungu, nema 5 síðustu árin a
Egilsstöðum. Starfaði hann við Bókasafn Héraðsbúa, enda fráhærlega að
sér uin liækur. Safnaði alltaf hókuin, en gaf hæði lestrarfélagi sveitar sinn-
ar og Bókasafni Héraðshúa kost góðra hóka.
Auk almennra meðlijálparastarfa var Einar heitinn forsjármaður kirkju
og kirkjugarðs á hinum auða stað í Kirkjuhæ um fjölda ára. Umgengni
hans þar og liirða var til mikillar fyrirmyndar. Áhugi lians á kirkju-
inálum vekjandi og sannur.
Útför lians var gerð að Kirkjuhæ 25. apríl. — Á. S.
Prentvillur í aprílhefti: BIs. 157: Þótt ég telji það sonarraup, á að vera:
Þótt ég telji það ekki sonarraup. Bls. 178: eudurtekiiingarlitið raunaleg ■ • •
á að vera: undantekningalítið raunaleg. Bls. 179: Hlunnindi prestanna !1
að vera: Hlunnindi prestsetranna. Bls. 180: Kosturinn er jafnan þröngur
á að vera: Kosturinn er jafn þröngur. BIs. 180: Ólík er tíðin og þegar
Daníel... á að vera: Ólík er tíðin og þcgar síra Daníel ...
KIRKJURITIÐ 36. árg. — 5. hefti — maí 1970
Tímarit gofiS út af Prestafólagi íslands. Kemur út 10 sinnum á ári. Verg kr. 200 árfl;
Ritsjóri: Gunnar Árnason.
Ritnefnd: Bjarni Sigur'ðsson,
Pétur Sigurgeirsson, Sigurður Kristjánsson.
Afgreiðslu annast Ragnhildur ísaksdóttir, Dvergabakka 30.
Sími 17601.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.
n. •