Kirkjuritið - 01.04.1975, Page 82
hugtakið ,,að geta“ notað líkt og hjá
Lúkasi við skírnina (Lk. 3:22). En andi
og samhengi textans sýnist fremur
styðja það viðhorf Conzelmanns, að
hér sé upprisan í brennidepli. —
Hvernig á þá að túlka þessa tilvísun í
Sálm 2:7? Hvernig tengist sonaryfir-
lýsingin upprisunni? Hugsanlega má
finna lausnina I Spekiriti Salómons,
2.—3. kafla, þar sem sú fullyrðing hins
réttláta, að hann sé Guðs sonur, á að
standast prófraun sína við dauða hans
með kröftuglegri staðfestingu Guðs:
— ,,Ef hinn réttláti er sonur Guðs, þá
mun hann hjálpa honum og frelsa
hann úr höndum fjandmannanna11
(Speki Sal. 2:18). Þannig mætti að
réttu lagi heimfæra Sálm. 2:7 upp á
Jesúm upprisinn, vegna þess að sann-
azt hafi I upprisu hans, hins réttláta
manns (Post. 13:28), að Guð hafi gjört
við hann sem son sinn (he was treated
as the Son of God) með því að reisa
hann upp frá dauðum. Augljóslega ber
ekki að einblína á orðalagið ,,ég hef
getiS þig“. Ef því fylgir nokkur áherzla,
þá er þetta óeiginleg lýsing þess, er
Jesús er reistur upp til nýs lífs, ellegar
er hér átt við upphaf ríkis hans, eins
og fólst í hinni upphaflegu notkun
textans í Sálm. Það eru því engin hald-
bær rök fyrir ættleiðingu í Post. 13:33
og þar af leiðandi út í hött að telja
Guðssonarhugmyndina um Jesúm fyrst
koma fram af þessu tilefni. Hitt ef
miklu nær sanni, að upprisan hafi ver-
ið hin endanlega sönnun þess, sem
Jesús hafði haldið fram: að hann var
sonur Guðs.
Af þessu er Ijóst, að heimildir vorar
um guðfræði fornkirkjunnar hnekkja
í engu þeim niðurstöðum, sem rann-
sóknin á guðspjöllunum hafði leitt í
Ijós. Rætur þess, að NT notar Guðs-
sonarheitið um Jesúm, má rekja til
hans eigin meðvitundar um að vera í
einstæðum tengslum við Föðurinn, en
þessa sjálfsmeðvitund lét hann í Ijósi
bæði með orðunum faSir minn um
Guð og Sonurinn um sjálfan sig.
Hér er ekki staður til að rekja frekari
þróun Guðssonarheitisins í fornkirkj'
unni. Látið skal nægja að hafa sýnt
fram á, að upphaf þessarar hugmyndar
var hjá Jesú sjálfum. Þegar því frum'
kirkjan tók að tilþiðja hann sem Guðs
son og byggja guðfræði sína á þeim
grunni, þá var það ekki víxlspor henn-
ar inn á brautir helleniskrar goðafræði.
heldur var það eðlileg ályktun hennar
reist á vitneskjunni um hinn sögulega
sjálfsskilning Jesú.
Jón Valur Jensson stud. theol tók saman.
80