Fríkirkjan - 01.03.1902, Qupperneq 11

Fríkirkjan - 01.03.1902, Qupperneq 11
43 hlýðnis skyldtinni á heilsuiæpum börnum.. í?að væri hægur vandi að skrifa langan kafla ura dll glappaskotin, sera gjörð eru í þessu tilliti. Það er raunar satt, að iikamleg vanheilsa er opt orsök ýrasra geðshræringa og margra keipa. Vér verðum að vera varasamir i dómum vorum, þegar veikindi eru ann- ars vegar. Skynsamir foreidrar verða vel að gæta sambands- ins á milii iíkama og sálar. Það er ætíð áríðandi, en einkum og séi' í lagi þegar böi neru veik.’ En vér fremjum giæpi gagn- vart börnum vorum, ef vér dekrum við þau, þegar þau eru veik, og vorkennum þeim um of, þegar þau í veikindunum eru óþekk, óráðþægin, ósannsögui, þrætugjörn og eigingjörn eða *) öllum heimiuum er vel kunnugt um að börnin eru opt veik, og höfundinum er einnig kunnugt um, að orsakir sjúkdómanna verða aldrei að fullu sigraðir hér í heimi. En samt held eg, að bömin væru miklu sjaldnar veik en þau eru, ef heilsugæzlan styddist við skynsam- legar og siðfcrðislegar meginroglur. ,.Haltu þig þar sem þér hentar bezt“ segir málshátturinn og þess vegna gjöri eg, sem er imestur, at- hugasemdir þessar með mestu hógværð. Eg hefi opt óskað þess að einkver læknir, — eg á við manua-lækni, en ekki dýralækni, eða þann sem skoðar mennina, og fer með þá eins og þeir væru siðuð dýr, — já, eg vildi að læknir, sem í sannleika væri guðhræddur og alvarlega siðferðislegur, ski-ifaði einhvern tíma dálitla alþýðubók um það, hvað foreldrarnir geta gjört til þess, að böruin þeirra eignist hraustan líkama. og komist hjá mörgum sársauka á líkama og sál. Eg ætla ekki að taka fram fyrir hendurnar á honum, en þar sem eg á sex heilsugóð börn, þá þykist eg vita, að þessi læknir mundi álasa allflestum foreldrum fyrir það, að þeir noti of lítið hin guðdómlegu lyf, sem ekkert koBta, sein sé lopt og vatn; tnnfremur að þoir dekri of mikið við börnin, bæði að því er fæði og ýmislegt annað snertir, og láti þau borða allt of mikil sætindi. Hann mundi segja að laugun, sund, leik- fimi, dagleg vinna og hreyfingar undir berum himni, lireinsi blóð- ið og endurhæri líkamann, auki kraptana, styrkti taugarnar og hressi skapsmunina. Hver getur talið þau börn, sem aldrei hafa fengið að njóta hinnar sönnustu og beztu gleði æskunnar, en verða ónytjungar á sál og líkama, af þvi að það hefur verið dekrað við þau og alin npp í þeim nautnafíkn? Hér á það við: „Sjáfsafneitun er mesta nautnin“. — En ef að Iæknir þessi skyldi verða hræddurum, að hann sjálfur og lyfjabúðin yrðu óþörf, þá get eg hughreyst hann með því, að allflestir foreldrar munu ekki trúa honum; það er engin hætta á að allur þorri þeirra fari að reyna að byrgja brunninn fyr en barnið er dottið ofan í hann. En það er tilvinnandi að vinna fyrir hina fáu, Höf.

x

Fríkirkjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.