Prestafélagsritið - 01.01.1925, Page 111
106
Ásmundur Guðmundsson:
Prestafélagsritiö.
krafti Páls og landstjórinn tók trú. Þannig mun kristnin
hafa náð að festa rætur á Kyprus. Eftir dvölina þar sigla þeir
norðvestur til Attalíu, hafnarborgar í Pamfylíu, og þaðan
fótgangandi upp til Perge. Þar rís ágreiningur á milli Páls
og Markúsar, vill Markús ekki fara lengra og lýkur svo, að
hann skilur við þá og snýr aftur til Jerúsalem. Það hefir ekki
valdið skilnaðinum, að Markús hafi kviðið ferðinni norður í
miðhluta Litlu-Asíu yfir Tárusfjallgarðinn, þar sem ræningjar
sátu fyrir ferðamönnum og ár voru hættulegar yfirferðar sök-
um vaxtar og straumhraða. Hann var enn ungur og hug-
rakkur eflaust, eins og kristnir menn voru þá flestir. Hitt
ræður meira hjá honum, að Páll hefir alt í einu vakið hug-
myndina um slíkan leiðangur, en þeir alls ekki gert ráð fyrir
honum áður, og nú verður hann í raun og veru foringi farar-
innar, þó Barnabas fylgist með. Hugsun Páls var svo stór og
djörf, að Markús skildi hana ekki þá. Því að þar mun koma
fram hjá honum berlega í fyrsta sinni viljinn til þess, að
boða fagnaðarerindið öllum heiminum og heiðingjunum ekki
síður en Gyðingum. Svo víðan sjóndeildarhring hafði Markús
ekki átt, né söfnuðirnir yfirleitt heima á Gyðingalandi. Hann
samþykkir ekki áætlun Páls, vængirnir eru ekki enn nógu
vaxnir og fleygir til þess að fylgja honum. Hann fær heim-
þrá til samvinnu við þá, er hann skildi betur og þeir hann,
og lætur hana ráða, hversu sárt sem Páli hefir sviðið það.
En áhrifin frá Páli lifa áfram í sál hans, þó leiðir skilji,
og festa þar dýpri og dýpri rætur. Þau verða til þess öllu
öðru fremur að móta andlegt líf hans á manndómsárunum og
efla þroska þess, eins og samveran við fyrstu lærisveina jesú
fyrir sitt leyti, meðan hann var á æskuskeiði. Hann hafði
aldrei Iifað neitt, sem jafnaðist á við það, að vera með Páli. Því
lengra sem líður, því meiri verður Páll og boðskapur hans í
huga hans. Enginn postulanna prédikaði með öðrum eins
krafti og hann, og þungamiðja kenningar hans var jafnan hin
sama: Kristur, krossfestur og upprisinn. Hann dvaldi ekki
við minningarnar um líf Jesú hér á jörðu á sama hátt og
þeir hinir. Þetta tvent hafði gagntekið svo hug hans. Hann