Prestafélagsritið - 01.01.1925, Page 166
Prestafélagsritið.
Prestafélagið.
161
félagsins var endurkosin að öðru leyti en því, aÖ præp. hon. Skúli Skúla-
son var kosinn í stað præp. hon. Kristins Daníelssonar, sem baðst undan
endurkosningu. — Endurskoðendur voru kosnir séra Friðrik J. Rafnar
og séra Kristinn Daníelsson.
Sú breyting hefir orðið á því, hvernig stjórnin skiftir með sér verk-
um, að dócent Magnús Jónsson fékk sig í sept. 1924 leystan frá for-
mannsstarfinu vegna annríkis, sérstaklega sem alþingismaður, og var pró-
fessor Sigurður P. Sívertsen kosinn formaður í hans stað. Eru félags-
menn því beðnir að snúa sér til hans með öll þau mál, er félagið varða
og ætla má, að félagsstjórnin geti haft einhver afskifti af, nema fjármál
og útsendingu félagsritsins, sem præp. hon. séra Skúli Skúlason annast
alt, eins og slðastliðið ár.
Félagsstjórnin vill láta þess getið, að hún finnur til þess, hve lítil
samvinna er á milli hennar og félaga út um Iand. Óskar að það mætti
breytast og að prestar vildu senda stjórninni tillögur og uppásfungur, er
presta Iandsins varða og félagsskap þeirra og verkahring.
S. P. S.
1. Af málum þeim, sem afgreidd voru frá síðasta þingi og kirkjuna
varða, eru merkust Iögin um stofnun nýs prestakalls í Hólssókn í Bol-
ungavík. Með þessum Iögum er ráðin bót á mjög brýnum annmarka og
þinginu er og verður stór sómi að því, að hafa Iitið á nauðsyn kirkj-
unnar í þessu efni.
2. í launalögunum frá 1919 var .svo ákveðið, að dýrtíðaruppbótin
skyldi greidd til ársloka 1925. Það var því öllum ljóst, að þingið varð
að taka ákvörðun um þefta atriði og bjuggust flestir við harðri rimmu.
Raddir höfðu heyrst um það, að afnema bæri alla dýrtíðaruppbót, en á
hinn bóginn hafa embættismenn með réttu þótst mjög vanhaldnir af
dýrfíðaruppbófinni eins og hún hefir verið, hvað þá að þeir mundu taka
því þegjandi að hún yrði afnumin. En þetta fór á alt annan veg. —
Samband starfsmanna ríkisins (formaður þess er prófessor Sig. P. Sívertsen)
vann af kappi að undirbúningi málsins, safnaði gögnum og gerði kröfur
og átti tal við stjórnina áður en farið var að undirbúa lögin. Lagði svo
stjórnin til að framlengja dýrtíðaruppbótina óbreytta, nema í atriðum,