Prestafélagsritið - 01.01.1932, Blaðsíða 188
Prestafélagsritift. H. I. Schou: Heili og sál.
181
í fyrsta lagi af því, að hún opnar sál minni djúpa óg eilífa
innsýn, sem hún gæti aldrei eignast, ef sú kenning væri rétt, að
sálarlífið stöðvaðist og hælti að vera til, er heilinn liði und-
ir lok. Þar sem mannlífið skortir þá trú, að líf sálarinnar sá
ævarandi, þar fer það á mis við dýpsta og fylsta unað sinn
og brestur aðalhuggunina, já einu huggunina, þegar dauðinn
kippir burt ástvinum vorum. Það er ekki ófyrirsynju, að
/. P. Jacobsen lætur Niels Lyhne komast af án trúar — þangað
til barnið hans deyr. En þá, þegar það verður, sem óttalegast
er, þá getur Niels Lyhne það ekki lengur. Ég get ekki — ég
vil ekki liða undir lok.
í öðru lagi rifur þessi kenning ekki niður trúarreynslu mina.
Ilún fær að standa. Og trúarreynsla mín er staðreynd, sem hugs-
un min gelur ekki neitað, nema hún afneiti sjálfri sér jafnframt.
Sum skip hafa stuðningskili svonefnda, sem draga úr rugginu
i hafróti; trúarreynsla min er mér slíkur stuðningskjölur. Sum
skip hafa akkeri, sem þau leggjast við i ofviðri, eða þegar þau
missa stýrið; trúarreynsla min er mér það akkeri. Og sum skip
hafa segl, sem þau sigla í byr til ókunnra slranda cða þegar
vélin bilar. sem ella knýr þau áfram; svo er um trúarreynslu
mína. Trúarreynsla min er þungamiðjan i tifi minu, og ég
gjöri kröfu til þess, að kenningar minar viðurkenni hana og
taki hana með í reikninginn. Trúarreynslan býr ekki sjálf til
kenningarnar, hún fæst yfirleitt ekki við það. En hún krefst þcss,
að hugsun min viðurkenni það, að hún sé staðreynd. Ef til er
alheimsvitund, sem mín meðvitund cr aðeins hluti af, þá er
ekkert eðlilegra en það, að samband verði milli meðvitundar
minnar og þessarar alheimsvitundar, milli Guðs og mín. Þá get
ég beðið, og þá get ég lifað trúarlífi. Þá gel ég reynt kraft Guðs
i lífi mínu, hversu hann leggur bönd á sumt í eðli minu, en
cflir annað.
„Oss finst vér vera börn. sem leikum oss við strönd úthafs-
ins“, sagði Newton, þegar hann leit til baka yfir æfi sina.
LANGVINN SÁLSÝKI
FRÁ SJÓNARMIÐI TRÚARINNAR.
Luusleg þýðing itr búk dr. med. H.I.Schous: Sjælelige Konfliklcr.
Getur það samrýmst hugsunum um kærleika Guðs, að lang-
vinn sálsýki skuli eiga sér stað? Er slik veilci ckki óleysandi og