Prestafélagsritið - 01.01.1932, Blaðsíða 201
ERLENDAR BÆKUR
PrestafélagsritiÖ.
Danskar bækur.
Skat Hoffmeyer, dr. tfieol.: Hvorfor være flittig? (Nyt nor-
disk Forlag. Kbhavn 1932).
Höfundur rits þessa er einn af efnilegustu guðfræ'ðilegum
rithöfundum Dana. Hann er ýmsum úti hér kunnur að góðu
einu frá dvöl sinni hér á landi. Og til grundvallar riti þessu
liggja að sumu leyti fyrirlestrar, sem liann fyrir 12 árum
flutti fyrir stúdentum í háskóla vorum. Hann hefir verið
maður stáliðinn með pennanum og hvert ritið á fætur öðru
frá honum komið; hefir hann þó haft ærið umsvifamiklum
embættum að gegna (hann er nú stiftsprófastur i Árósum)
og verið mikið notaður sem, fyrirlestramaður. Fyrir fveim
árum gaf liann út rit, sem vakti mikla athygli og nefndist „Til-
vœrelsens Sammenhæng belyst af britisk Tænkning“. Þar ger-
ir hann grein fyrir afstöðu brezkra heimspekinga (frá sið-
ustu tímum) til hinna opinberu trúarbragða, sérstaklega krist-
indómsins eða hinnar kristilegu heimsskoðunar. Bar það rit
hinn fegursta vott um hve víðlesinn höfundur þess er og ná-
kunnur efninu, sem til meðferðar er, en sýnir jafnframt, að
hann er býsna sjálfstæður hugsunarmaður og rýninn á ann-
ara kenningar.
Rit það, sem hér skal bent á, er eins og fyrirsögn þess ber
með sér helgað vinnunni og sérstaklega gerð grein fyrir,
iivernig menn hafa litið á vinnuna (einkum hina líkamlegu)
frá elztu tímum fram á vora daga, hvort menn hafa litið
á hana sem blessun eða bölvun, hvort menn liafa unnið af
því þeim fanst skyldan heimta það eða af því nauður rak til
þess. Hefir úr þessu orðið mjög fróðleg og lærdómsrik grein-
argerð, sem ég er sannfærður um að verður lesin með mik-
illi ánægju af þeim, er gefa sér tíma til að lesa annað en skáld-
sagna-léttmeti.
Sem gefur að skilja, byrjar höfundur á Gamla-testamentinu
og sýnir fram á, hvernig skoðanir manna á vinnunni breytast
smátt og smátt frá þvi, sem upphaflega átti sér stað, að skoða
hana sem böl (sbr. syndafallssöguna í 1. Mósabók), unz farið
er að telja hana til guðlegra ráðstafana mönnunum til heilla
(Salómós orðskviðir og Prédikarinn). Síðan lýsir höf. skoðun-
um Nýja-testamentisins á vinnunni, hversu Jesú liti á vinnuna
sem sjálfsagðan hlut og telji vinnusemina til þeirra dygða, sem