Prestafélagsritið - 01.01.1932, Blaðsíða 208
Prestafélagsritið.
LÖfígjÖf.
201
á hendi, undir yfirumsjón sóknarnefndar og á ábyrgð hennar,
og gefur hún honuin erindisbréf.
15. gr. Skógræktarstjórn landsins skal skylt ao lála sóknar-
nefndum i té trjáplöntur til gróðursetningar meðfram girðingum
kirkjugarða að innanverðu og meðfram gangstigum innan garðs.
Skulu trjáplöntur þessar litnar ókeypis.
Rækunarstöðvum, sem styrktar eru af almannafé, er skyit aö
lála sóknarnefndum, eða umboðsmönnum þeirra, i té blóma-
og trjáplöntur til gróðursetningar á leiðum gegn vægu gjaldi.
17. gr. Heimilt er að stofna legstaðasjóði i hverri sókn.
18. gr. í legstaðasjóð geta menn lagt fé, sem ávaxtast þar
til viðhalds legstaðar þess, er hluaðeigandi óskar.
19. gr. Sóknarnefnd hefir á hendi stjórn sjóðsins undir yfir-
stjórn prófasts, og er henni skylt að ávaxta innlögin í Söfn-
unarsjóði íslands, þannig, að hver legstaður hafi sjerstaka við-
skiftabók.
Stofnandi hvers sjóðs skal i samráði við sóknarnefnd setja
fyrirmæli um, hvernig verja skuli útborguðu vaxtafé til viðhalds
og endurnýjunar legsíaðnum, og er sóknarnefnd þá skylt að sjá
um, að þeim fyrirmælum sé fylgt.
21. gr. Niðurlagðir kirkjugarðar skulu taldir meðal forn-
leifa, og sér dóms- og kirkjumálaráðuneytið um, að friðhelgi
þeirra sé lýst á þingi.
22. gr. Sóknarnefnd lætur gera griphelda girðingu um nið-
urlagðan kirkjugarð og heldur henni við á koslnað sóknar-
kirkjugarðsins, á meðan vel sést til leiða i kirkjugarðinum.
Næstu 20 ár eftir að kirkjugarður hefir verið iagður niður má
þar jaröa einstaka menn, ef rúm leyfir og klukka er þar til
hringingar, en skylt er þeim, er lætur grafa, að setja trausta
girðingu um legstaðinn og leggja hæfilega fjárupphæð i leg-
staðasjóð, honuin til viðhalds.
25. gr. Nú brýtur sjór eða vatnsfall gamlan kirkjugarð eða
liann eyðist af uppblæstri, svo að bein framliðinna koma i ljós,
og skal þá sóknarnefnd tafarlaust gera prófasti og fornmenja-
vcrði viðvart, enda ber henni eftir samráði við þá að gera
svo fljótt sem verða má, á kostnað kirkjugarðs sóknarinnar,
þær ráðstafanir, er þurfa þykir.
29. gr. Sóknarnefnd er heimilt, að fengnu samþykki safnað-
ar- og héraðsfundar, að taka upp legkaup í sókn sinni, með
samþykt, er ráðuneytið staðfestir.
Sóknarnefndin innheimtir þá legkaupið gegn 6% innheimtu-
launum.