Vekjarinn - 01.04.1904, Page 7

Vekjarinn - 01.04.1904, Page 7
7 in sín og allt, sem hann gat frekast án verið, og hlýddi bókstaflega boðinu: „Seljið eigur yðar og gefið fátæklingum." Hann ljet það ekki fá á sig, þótt bústaður hans yrði fátæklegur. Hann hefur sjálfur í fyrirlestri löngu síðar lýzt þessum kafla æfi sinnar á þessa leið: „Jeg keppti nú að tveimur markmiðum, annarsvegar að herða líkama minn og hinsvegar að spara svo að jeg gæti hjálpað þurfamönnun- um, sem jeg kynntist, þegar jeg var að vitnaum frelsarann, og komst jeg þá smám saman að því, að jeg komst af með miklu minna, en jeg hafði haldið áður. Brauð og smjör, kjöt og mjólk urðu nú óhóf fyrir mig. En hafragrautur og hrísgrjóna- grautur til skiptis var ódýr fæða, og jeg gat vel lifað af því. Eptir það gat jeg gefið 2/a parta af tekjum mínum til fátækra og til styrktar kristin- dómi, og þá reyndi jeg að því meira, sem jeg gaf, og því minna, sem jeg eyddi sjálfur, því meiri fögnuð og blessum gaf Drottinn mjer, gleði fjeli mjer í skaut hvern einasta dag. Jeg fann að Guð, já minn Guð, var hjá mjer og jeg þurfti ekki að gjöra annað en þjóna honum með gleði. Samt sem áður var mjer erfið tilhugsun að eiga að fara til Kína, fjarri allri mannlegri aðstoð, og verða að treysta Guði einum bæði að því er vernd og viðurværi og allar nauðsynjar snerti. Jeg sá að jeg þurfti meira andlegt þrek. Það var áreiðanlegt að Drottinn mundi ekki bregðast, eí trúin bilaði ekki; en ef trúin Mlaði, hvernig

x

Vekjarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vekjarinn
https://timarit.is/publication/500

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.