Vekjarinn - 01.04.1904, Side 28
28
Árið 1548 flýði ungur Japani af háum stig-
um úr landi, og komst til Góa á Indlandi, kynnt-
ist þar kristniboði Jesúíta og tók trú. Hann
hvatti þá mjög til að flytja kristindóm til Jap-
an, og fór svo að höfuðsmaður Jesúítanna þar,
Frans Xavier, stje á skip 1549 og hjelt til Jap-
ans. Vinir hans löttu hann fararinnar eptir
megni, en hann svaraði: „Hverju á jeg að svara
Guði, þegar hann bendir mjer á Japan og ámæl-
ir mjer fyrir að það sje ótrúmennsku minni að
kenna að þeir viti ekkert um fagnaðarerindið;
hann hafi gefið mjer vísbendingu um að fara,
en jeg hafi metið meira ráð vina minna, en vilja
sinn?“ — Slík svör sæma trúum þjónum Drott-
ins. —
Xavier starfaði 2 ár í Japan, en sá engan
árangur 'iðju sinnar, og dó við strendur Kína,
þegar hann ætlaði að fara að hefja kristniboð
þar. En margir komu á eptir honum, og brátt
fór kaþólska trúboðinu að ganga vel í Japan.
Um 1600 urðu miklar byltingar í Japan og geys-
aði þá áköf ofsókn gegn kristniboðinu og öllum
útiendingum, og hætti hún ekki fyr en búið var
að drepa eða flæma úr landi alla kristna menn
nema Holiendinga, sem gróðafíknin hafði kom-
ið til að spilla fyrir Spánverjum og Portúgals-
mönnum, og höfðu sjer til eilífrar smánar neit-
að kristnu trúnni, troðið krossmarkið undir fót,-
um í augsýn Japana til sannindamerkis um, aö
þeir ættu ekkert skylt við kaþóiskuna, og jafn-