Vekjarinn - 01.04.1904, Page 45

Vekjarinn - 01.04.1904, Page 45
45 nokkur í Ameríku gaf t. d. 400 þúsund krónur fil Dosjisju. Nísíma kom heim aptur í desemb. 1885, og biðu þá 500 manns eptir honum á járnbrautar- stöðunum og heilsuðu honum með fögnuði. — Hann hjeit nú starfl sínu áfram, gat byggt hvert stórhýsið á fætur öðru fyrir háskólann, og fór að láta kenna þar allar greinir visindanna. Árið 1889 voru 900 á skóla hans og höfðu 172 heið- ingjar þeirra á meðal snúizt tii lifandi trúar það ár. Enda var Nísíma umhugað um að menntun- in út aí fyrir sig væri ekki takmarkið heldur iifandi og starfandi trú. En nú var heiisa hans orðin svo biiuð að sýni- legt var a-ð hann mundi ekki eiga langt' eptir. En allt til síðustu stundar áminnti hann alla, sem til hans komu, að starfa af alefli fyrir máli Drottins. Skilnaðarbrjef hans til kennaranna við Dosjisju hijóðar svo: „Takmark Dosjisju er að efla kristindóm, náttúruvísindi og almenna menntun. Allt þetta á að fara saman. Takmarkið er ekki eingöngu guðfræði, náttúrufræði eða aðrar vísindagreinar, heldur að þroska með þeim námsmennina svo að þeir verði góðir raenn, sem starfl eindregið fyrir frelsið sanna og föðurlandið. Yfirmennimir þurfa að gæta allrar hyggni í umgengni sinni við námsmennina. Enginn skyldi vera of strangur við þá, sem eru stórgeðja og miklir fyrir sjer, heidurtaka tillit til lundar- fars hvers einstaks, svo að liver einstakur geti orðið sjálfstæður maður. Pégar skólinn stækkar meira, er meiri hætfa á að hálfvelgja komist, inn. Gætið yðar fyíir henni! Útlendu og japönsku kennararnir eiga að

x

Vekjarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vekjarinn
https://timarit.is/publication/500

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.