Nýjar kvöldvökur - 01.11.1908, Side 21
HRINGHENDUR.
261
Hringhendur.
Eftirfarandi hringhendur hafa Nýjum kvöldvökum borizt til verðlauna
samkvæmt auglýsingu í 7. hefti.
Ársól gljár við Unnar svið
Ofið báruskrúða,
Ræðir smára rjóðan við
Rósin táraprúða.
Halldór Friðjónsson frá Sandi.
Ástin hrindir andans ró,
Ymsa blindað hefur;
Kætir lyndi, færir fró,
Frið og yndi gefur.
Nafnlaust.
Barn á hóli hættir Ieik,
Harðnar gjólari tíða,
Farna sól þá byrgir bleik
bjarnarnarnjólan stríða.
Dómar falla dauða þá,
Drómar alla beygja,
Blómin halla höfði’ und snjá,
Hljómar snjallir þegja.
Ólina Andrésdóttir
Vatneyrí Patreksfirði.
(Höf. að þriðju verðlaunavísunni í Sigur-
hæðavísunum.
Bragar- lifir listin góð,
Löng sé þrifa stundin.
Meðan klifar mamma jóð,
Mæt ei bifast grundin.
Nafnlaust.
Bjarg að sandi máttur mól
Margra handa á vegi.
Alt er landið svarið sól,
Sérhver andinn degi.
Indriði Þorkelsson undir Fjalli.
Birtist sjóli hár og hreinn
í helgum skólafræðuml
Veldis-stólinn á hann einn
Upp á sólar-hæðum.
B. Einarsson á Hálsi.
VOR.
Blómin fríðu þróast þétt,
Rekur víðir hjalla,
Róminn blíða lóan létt
Lætur tíðum gjalla.
VORHARÐINDI.
Fellur tíðin ekki enn
Eftir lýða högum,
Gellur hríðin mögnuð — menn
mega kvíða dögum.
Köldum anda kári blæs,
Köldu landi svíður,
Földum strandír felast snæs,
Fjöldi grandið líður.
ÓGÆFTIR.
Lýð til ama löngum hér,
Leggja saman kyngi.
Varla gaman vorðið er
Vinda hamremmingi.
Jónas Þorsteinsson Nesi í Norðfírði.
Böl þótt hrylling búi þjóð
Á brautum villu hálum,
Ýta fyllum æskumóð
Óðs með snillimálum.
H. F. frá Sandi.
Dal og hól og himininn
Huldi njólan svarta;
Geislar ólu aldur sinn
Upp við sólar hjarta.
B. E, Hdlsi.