Nýjar kvöldvökur - 01.02.1912, Side 11

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1912, Side 11
HYPATIA. 35 þér óhætt. Og nefndu mig nú aftur móður. Mér fellur það vel. Hversvegna, veit eg ekki, en mér fellur það vel. Og — Rafael Ben-Esra — hiæðu ekki að mér og nefndu mig ekki fælu eða fordæðu, eins og þú gerir oft. Mér er sama þó aðrir geri það — eg er því svo vön. En ef þú gerir það, langar mig altaf til að reka þig í gegn. Pess vegna gaf eg þér rýtinginn. Eg átti hann áður. En eg varð hrædd um að eg mundi freistast til að nota hann einhvern dag- inn, ef mér dytti í hug, hvað þú mundir verða fallegur, ef þú Iægir dauður og sál þín væri í faðmi Abrahams, og sæi þaðan alla heiðing- jana stikna í loganum. Hlæðu ekki að mér og hafðu ekki andstygð á mér. Eg er til með að gera þig að æðsta ráðgjafa keisarans einhvern góðan veðurdag. Eg get það ef eg vil.» »Ouð forði mér frá því,« svaraði Rafael hlæjandi. cHlæ þú ekki að mér, Rafael. Eg hef sett upp stjörnumælinn í gær, og veit það vel, að þú hefur engar ástæður til þess að hlæja. Milkil hætta og freisting liggur fyrir þér. Og ef þú sleppur vel út úr því öllu saman, þá verður þú líklega herbergisvörður, æðsti ráðgjafi, keisari ef þú vilt. Og það skaltu verða — viti það hinir fjórir höfuðenglar —það skaltu verða.« Og með það hvarf hún út í þverstræti. Rafael stóð eftir ráðþrota og forviða. (Framh.) GAMLA Eftir Emanúel (Framh.) »Þessu á eg bágt með að trúa,« sagði org- anleikarinn. »Að vísu er eitthvað hvíslað um það manna á milli hér í bænum, að efni þín muni vera á þrotum, en eg hefi haldið það væri ástæðulaust bæjarþvaður.« »Málavextirnir eru eins og eg hefi skýrt þér frá,« sagði húsráðandi, »eg hefi hingað til þag- að um þetta, til þess að gefa ekki bæjarþvaðr- inu fullan byr í seglinn, en sannleikurinn er, að peningarnir eru horfnir, Hugsanlegt er, enda líklegt, að þeir séu faldir hér í húsinu en hvar, það er hulin ráðgáta; eg hefi grand- gæfilega leitað hér í öllum skúmaskotum en ekkert fundið. Jockumsen, þessi slungni refur, hefur gefið mér 14 daga frest. Finni eg eigi kvittunina, eða hafi fengið peninga til að borga honum á þeim tíma, verður gengið að fast- eigninni.» »Getur vinnufólkið ekki gefið neinar upp- lýsingar í þessu máli?« »Faðir minn hefur naumast látið nokkurn vita um, að hann faldi peninga. Jómfrú Didrik- HUSIÐ. Henningsen. sen veit ekkert. Væri einhverjum eitthvað kunn- ugt urh þetta mál, þá væri það‘Mikkelsen, en karlauminginn er hálfruglaður, síðan faðir minn dó, það er líkast því, sem hann gangi í barn- dóm.« »Mér sýnir réttast að þú rífir þess gömlu byggingu niður til grunna, þá hljóta pening- arnir að koma í leitirnar.« »Já, eg ber ekki á móti því,« sagði Lynge með léttu andvarpi, »að eg vildi heldur að pen- ingarnir fyndust.« »Og Jockumsen gamli, sá er furðu áræðinn.« »Hann fer kænlega að, hefir grunað að kvittunin ef til vill væri glötuð, sem hún líka er. Hættan var ekki mikil að sýna mér skulda- bréfið og óska eftir borgun, hefði eg komið með kvittun, féll málið niður, en hefði eg hana enga, var til mikifs að vinna.« Pegar hér var komið samræðunum var klapp- að á dyrnar og jómfrú Didriksen, öldruð en velbúin piparmey, kom inn. Hún hafði í mörg ár verið ráðskona í þessu gamla húsi. 5*

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.