Nýjar kvöldvökur - 01.02.1912, Blaðsíða 14

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1912, Blaðsíða 14
38 NÝJAR KVÖLDVÖKUR nokkrum sinnum síðan, að vísu geðjast mér ekki að því — — — þó finn eg að hún því fremur er hjálpar þurfi.» »fú ert sannarlega einkennilegur maður,« sagði Lynge, og lagði handlegginn yfir herðar á vini sínum. »Sínum augum lítur hver á silfrið segir máltækið,« mælti organleikarinn. »En nú skul- um við líta inn hjá annarskonar fólki, hérna eru dyrnar. Þeir gengu inn í litla forstofu, og læti og hávaði heyrðist innan frá. Búsk lauk upp dyr- unum án þess að berja og fór inn, og Lynge fylgdi honum, þeir komu inn í litla stofu með leirgólfi. Fátæklegt var þar umhorfs. Borð og tveir stólar stóðu undir glugganum og sást þar lítið annað af húsgögnum. Inst í stof- unni sat bleik og veikindaleg kona í gömlum reyrstól, en við borðið stóð maður þreytu- legur og sem auðsjáanlega hafði iítið af hvíld- artímanum að segja; hann reykti úr litilli krítar- pípu. Á miðju gólfi voru 5 börn í hvirfingu og höfðu hvolp á milli sín; elzta barnið virtist vera á tólfára aldri, en það yngsta um þriggja ára. Pegar þeir félagar höfðu boðið gott kvöld, veik Busk sér að manninum og mælti: »Hvernig Iíður ykkur núna.« »Jæja, herra organleikari, við höfum nú eigi ástæðu til að kvarta. Parna situr mamma nokk- uð brött, að vísu er hún kraftalítil, en alt er betra en þurfa að liggja í rúminu og eg vona, að hún fari nú að ná sér. Og krakkarnir ráða sér ekki af kæti yfir hvolpinum, sem eg er ný- búinn að útvega þeim. Hann er mjög skrítileg- ur, svo við hjónin höfum líka gaman af honum.« »Hum,« sagði organleikarinn ofurlítið efa- blandinn, »en slíkt stofustáss kostar þó ekki svo lítið, bæði er nú skatturinn og svo þarf hann fæðið sitt.« »Auðvitað,« svaraði maðurinn, »en það er hægt að fara að því á setn liðlegastan hátt, lögreglan veit ekkert uni hann, og það eru fimm fjölskyldur, sem eiga hann og fóðra. Við höfum hann sinn daginn hver. Pað var vita- skuld ekki takandi í mál fyrir eina fjölskyIdu að fóðra svona dýr.« Ressi síðustu orð mælti hann við Lynge, því að Busk hafði gengið til konunnar og tal- aði í hljóði við hana. Lynge sá að hann fékk henni peninga og klappaði henni hughreystandi á herðarnar. Svo kvöddu þeir vinirnir hjónin og krakk- ana og fóru leiðar sinnar. Á leiðinni frá húsinu sagði organleikarinn við Lynge: »Eg vildi að þú þektir þessa konu, hún er sannarleg perla, hrekklaus, tilfinninga- næm, hjartagóð og vitur; af slíku efni eiga helgir menn og dýrlingar að skapast. Enda þótt hún hafi nú langa lengi verið meira eða minna veik, er það þó hún, sem heldur við og stjórnar þessu heimili, svo alt fer vel úr hendi. Mað- urinn vinnur að vfsu og dregur ekki af sér, en er einfaldur og barnalegur, en nægjusamur, og gleðst af hverjuin vindilstúf, sem honum er gefinn eða hann finnur í pípuna sína. Konan fékk það, sem eftir var af peningunum frá þér, svo við höfum ekki meira að gera hér út í fátækrahverfinu; er þvf bezt við göngum út úr bænum til þess að njóta þar kvöld- kyrðarinnar. Fimm fjölskyldur um einn hund, slíkt og þvflíkt hefi eg aldrei fyrri heyrt,* sagði organleikarinn skellihlæjandi. Þegar þeir komu afttir til bæjarins, vinirnir, fóru þeir inn í veitingarhús eftir tillögu organ- leikarans og skemtu sér um stund við kúluspil. Klukkan 12 fylgdi Busk vini sínum heim að bústað hans. «Hver opnar nú fyrir þér?« spurði organ- leikarinn er þeir komu að dyrum brauðgerð- arhússins. »F*að er eflaust einhver á ferli, sagði hús- ráðandi, og barði óvægilega að dyrum. Jafnskjótt brá fyrir ljósi í báðum gluggun- um, og raust ungfrú Didrikssen spurði titrandi. «Er það Ólafur?« '»Já það er eg,« svaraði húsráðandi. Lyklinum var snúið og og hurðin laukst upp. Inni fyrir stóð ungfrú Didriksen með

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.