Nýjar kvöldvökur - 01.05.1912, Side 23
LOFORÐIÐ
119
sér og dóttur sinni, og að hún væri alveg ein-
mana í veröldinni, þegar hún félli frá.«
»Sagði hún þér þá ekki eitthvað um ætt-
ingja dóttur sinnar? geta þeir ckki tekið stúlk-
una að sér?«
»Nei, það var nú einmitt um þá, sem eg
reyndi að fá að vita, en konan vildi ekkert
segja, enda dó hún áður en úttalað var milli
okkar um dóttur hennar. Eg fór undireins og
konan var dáin til stúlkunnar og fánn hana á
fátæktarheimili, fremur lélcga til fara. Hún er
engan veginn fullþroskuð. Hiín reyndi ekkert
að stilla harm sinn, þegar hún heyrði að móð-
ir henar væri dáin, og kom fram í geðofsa gagn-
vart mér, út af því að eg hefði eigi sótt hana
til móður sinnar áður en hún lézt. En hvað
sem þessu líður, þá er hún nú einu sinni orð-
inn skjólstæðingur minn, því að eg álpaðist til
þess að lofa móður hennar því í andarslitrun-
um að sjá um dóttur hennar.«
»Aumingja stúlkan!« sagði Manders eins og
við sjálfan sig.
»Aumingja stúlkan, segir þú,« sagði Ander-
son og hló kuldalega. »Finst þér eg ekki verð-
skulda neina meðaumkun?*
»Ójú, það má vel vera en ekki eins mikla
og stúlkan, sem mist hefur móður sína ein-
mitt á þeim tíma, sem hún ef til vill hefur haft
hennar mesta þörf. Eftir lýsingu þinni gæti eg
hugsað, að hún væri illa til þess fallin að ganga
nú þegar út í baráttu lífsins. Og eg nefni hana
vesaling, af því að hún hefur ekki aðra en hinn
stranga og harðhjartaða Miles Anderson að
leita athvarfs hjá.«
Um leið og Manders sagði þetta reis hann
á fætur og sló á herðar vini sínum, sem tákn-
aði það, að síðustu orðin væru sögð í gamni.
»Þetta getur nú alt saman verið satt og
blessað,« sagði Miles, sem líka stóð á fætur, »en
aðalatriðið er, hvað eg á að gera við stúlkuna,
sem eg er skuldbundinn að sjá um. — Móðir
hennar bar svo mikinn kvíðboga fyrir framtíð
hennar, og það píndi hana svo á dauðastund-
inni, að mér varð það, til þ.ess að friða hana,
að eg lofaði henni að sjá um barn hennar.
Eg hélt að þetta væri lítið stúlkubarn, en svo
»Svo var'það ung og nærri fulivaxta stúlka,«
bætti vinur hans við, þegar Miles strandaði.
»Eghef hluttekningu með þér, gamli vinur. Eg
get svo vel skilið, að það sé ekkert skemtilegt
fyrir þig að hafa eignast þennan skjólstæðing.
Eg vil því ráðleggja þér að reyna að hafa upp
á ættingjum hennar, einhverja hlýtur hún að
eiga. Auðpist þér að finna þá og færa þeim
stúlkuna til ásjár og eftirlits, finst mér þú hafa
int af hendi mikið af því, sem þú hefur lofað.
Að öðrum kosti sé eg engin önnur úrræði en
þau, að þú takir stúlkuna þér fyrir konu, eða
setjir hana í klaustur. Og nú verð eg að fara.
Eg vildi að eg hefði getað gefið þér betra ráð,
en eg þekki engin betri.«
»Þú hefir að minsta kosti gefið mér um-
hugsunarefni,« sagði Anderson með uppgerðar-
brosi, og ekki mun eg liggja á Iiði mínu við
að reyna að finna ættingja stúlkunnar.
Retta áform sitt reyndi hann að framkvæma
þrem dögum síðar, þegar hann eftir jarðafför
frú James var sfaddur á fátæklega heimilinu í
Merlínstræti, þar sem hann hafði fyrst hitt Hope,
og sá hann ekki annað vænna, en að hún dveldi
þar fyrir það fyrsta fram yfir jarðarförina.
Við jarðarförina fanst þessum smekknæma
manni skjólstæðingur sinn líta enn ver út en
áður. Líkt og marga karlmenn vantaði hann
nákvæmni og sanna umhugsunarsemi, og því
hafði honum ekki hugkvæmst, að hana mundi
hafa skort efni til þess að útvega sér viðeig-
andi sorgarbúning til að mæta í við jarðarför-
ina, og því síður hafði honum komið til hug-
ar, að hún mundi ekki hafa einurð til að biðja
hann um peninga til þessa. Enga hugmynd
hafði hann heldur um, að fötin, sem hún var
í, og sem honum þóttu bæði ósinekkleg og
fara illa, höfðu verið fengin að láni sitt í hverjum
staðnum, og hafði frú Brooks gengið vel fram
/ því að útvega þau.
En það var ekki einasta klæðnaðurinn, sem
hafði misboðið hinum næma fegurðarsmekk
Iæknisins, heldur hafði það líka óþægileg áhrif á