Nýjar kvöldvökur - 01.05.1912, Blaðsíða 9

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1912, Blaðsíða 9
HYPATIA. 105 hafa einhvern, sem hann gæti ausið út fyrir hjarta sínu. Ögn fyrir ögn — orð fyrir orð rifjuðust upp fyrir honum atvikin kvöldið fyrir, og svo endaði það með því, að hann bað daglaunamanninn að hjálpa sér til að ná í ein- hvern morgunmat handa sér, og helzt að vinna sér hann inn. »Vinna sér hann inn? Ætti vildarmaður guðanna — gestur Hypatfu — að fara að vinna sér fyrir mat, á meðan eg á ráð á nokkrum eyri? Fjarri mér! Ungi maður, eg hef gert þér rangt. Nú erum við bræður og vinir í hatrinu til munkaskrílsins. Pað er til heitur fisk- ur soðinn og steiktur heima hjá mér — nógur freyðandi mjöður í horninu og laukur í auka- getu. Komið með mér, gestur minn og bróðir.« Fílammon lét allar athuganir falla niður um það að verða gestur heiðingjans, því að hann sá að annars mundi hann engan matinn fá. Varð hann svo manninum samferða að dyrum Hypa- tíu. Par lagði hann af sér byrðina og gekk síðan inn í hliðarstræti og að dyrum á kjall- ara einum; moraði þar alt af börnum, köttum og ketlingum. Par fór maðurinn með Fílammon inn í stofu eina litla, og lagði þangað angandi þef af steiktum fiski. »Júdit, Júdit,« æpti daglaunamaðurinn, »hvar ertu nú? Svarta Andrómeda? Marmaraklöpp frá Pemtelíkos? Froða af víndökku hafi? Lilja frá Mareotisvatni? Ef þú kemur ekki undireins með morgunmatinn, skaltu eiga mig á fæli.« Dyrnar til hliðar opnuðust þegar, og skauzt þar inn skjálfandi stór og beinvaxin negra með Iyklakyppu í hendi, klædd snjóhvítum kyrtli og með gulan túrban á höfði. Hún bar disíra- hrúgu í fanginu, og ljómaði svo af henni að birti í stofunni. Hún lagði frá sér lyklana, en daglaunamaðurinn benti Fílammon á stól til að setjast á með konunglegri bendingu; en konan beið auðmjúklega eftir skipunum herra síns og drottins. En hann lét ekki bíða að kynna hon- um þessa svörtu konu, og segja honum, að hún væri alt sitt kvennabúr. En þess hefði ekki þurft til, því óðara en Fílammon var byrj- aður að borða, stökk negran að honum, faðm- aði hann að sér og kysti höfuð hans óteljandi kossum, Litla manninum fór ekki að verða um sel. Hann spratt á fætur, veifaði hnífnum í annari hendi en stórum lauk í hinni og orgaði upp; og Fílammon varð litlu betra við; hann spratt upp líka og hristi negruna af sér. Þegar hún sá að hún gat ekki lengur ausið út tilfinning- um sínum yfir höfuð hans, breytti hún til, fleygði sér á gólfið og kyssti fætur hans hvað eftir annað með þeim ákafa, eins og henni væri ekki sjálfrátt. »Hvað er þetta? Svona upp í opið geðið á mér? Minna má nú gagn gera! Upp, þú hin ósvífna dækja, eða þú skalt dauða deyja.« Og daglaunamaðurinn dró hana upp á hnén. »Það er munkurinn! Þetta er ungi maður- inn, sem eg hef sagt þér frá, að bjargaði mér undan Gyðingunum um nóttina. Einhver góður engill hefur sent hann hingað, til þess að eg gæti þakkað honum fyrir það,« æpti aumingja konan og tárin streymdu niður eftir kolsvörtu andlitinu. »Eg er þessi góði engill,« sagði daglauna- maðurinn, og var heldur en ekki upp með sér. »Stattu upp, dóttir myrkranna; þér er fyrirgefið. Þú ert ekki nema kvenmaður. Komdu í faðm minn, ungi maður. Hinn spámannlegi andans máttur þinna framtíðarvelgeifhi dró mig að þér, undir eins og eg sá þig, meö ein- hverju ósýnilegu dragreipi eða seilarbandi eða reiðakaðli. Eg Iofa þig ekki fyrir það — nei, þakka þér ekki heldur, þó að þú hafir bjarg- að eina pálmanum, sem eg nýt forsælunnar af. Það sem þú hefur gert, hefur þú gert af ein- beru náttúruviti — af guðlegri þvingun. En þú mátt reiða þig á mig. Eg skal ekki bregðast bróðureðli iú. Ef einhver ætlar eitthvað að gera þér til meins héðan af, þarftu ekki ann- að en að kalla á mig. Og ef eg er þá svo nærri, að eg heyri það — þá sver eg það við þessa mína hægri hönd —« Og hann reyndi að klappa á höfuðið á Fílammoni, en af því að hann var svo miklu minni, gat hann ekki náð til þess. En svo 14

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.