Nýjar kvöldvökur - 01.05.1912, Blaðsíða 15

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1912, Blaðsíða 15
GAMLA HÚSIÐ. 111 »Við undirritaðir vottum hér með að við höfum séð Jockumsen umboðssala undirskrifa ofanritaðar línur með nafni sínu. Við þekk- jnm ekki efni þeirra, en vottum að Jockum- sen hefir sagt, að það sem í þeim stæði væri sannleikur. A. Mogensen. I. Borch. Úrsmiður. Snikkari.« Út á röðinni á skjali þessu stóð skrifað með ritblýi: >Jockumsen heldur að skjal þetta hafi ver- ið brent, og eins heldur hann að eg haldi að skuldabréf mitt sé týnt, en eg þykist vita, að hann geymi það vel. Með kænsku skal refinn veiða.« »Hér koma þá upplýsingarnar um það, af hvaða ástæðum faðir minn gat fengið Iánaða peninga hjá Jockumsen með sanngjörnum vaxta- kjörum,« sagði Lynge, þegar hann var búinn að átta sig á þessu einkennilega skjali. »F*etta mun og Ieysa úr gátunni um það, hvernig Jockumsen í fyrstu útvegaði sér peninga til þess að byrja með sinn þokkalega atvinnurekstur.« »Hvað ætlar þú að gera við þetta skjal ?« spurði Busk. »Eg ætla að þjappa að þorparanum ofur- lítið, svo hann gleymi því ekki fyrst um sinn. Nú er það eg, sem hef völdin, því annað vitn- ið lifir enn þá eins og þú vei^t, Borch snikkari.« Organleikarinn hallaði sér hugsandi aftur að stólbakinu, hann sat með alvörusvip ofurlitla stund og mælti síðan: »Eg vildi óska, að þú gætir fengið Jockum- sen til þess að fara úr landi, eða að minsta kosti fara héðan úr bænum og nágrenninu.... Eg vil ekki hafa afskipti af þessu máli, en mér er það áhugamál, að hann flytji héðan burtu.« »F*ér það áhugamál,* tók Lynge upp eftir honum undrandi. »Hefur þú þá — en, vinur minn, ef það eru peningar, þá veiztu, að eg vil hjálpa, og get það nú . . . « »Nei, það eru ekki peningar,« sagði Busk og hristi höfuðið. »En lofaðu mér að þegja yfir ástæðunum fyrir þessari ósk minni, einn eða tvo daga enn þá, eg vil ekki hafa áhrif á hvað þú gerir í þessu máli, en eg býst samt við, að þú kærir ekki karlinn fyrir yfirvöldun- um, þótt þú kunnir að hóta því.« »Nei, auðvitað,« sagði Lynge, og horfði með undrun á vin sinn, sem hann hafði aldrei séð jafnalvörugefinn, jafnvel var nú eins og ótti eða kvíði angraði hann; »en eg ætla .... það er nú það sama, eg tek nú til minna ráða, ef til vill viljum við báðir það sama, að karl- inn flytji héðan úr nágrenninu.* F*að var ekki jtalað meira um þetta mál. Lynge lagði kvittunina og víxilinn afsíðis, og þegar hann síðan hafði farið yfir öll skjölin, skildust þeir vinirnir og Busk hélt heimleiðis. F*egar hann kom heim settist hann við dá- lítið orgel, sem hann átti, án þess að kveikja Ijós, og brátt fyltu herbergið angurblíðir og mjúkir tónar, er báru vott um tregaþrungnar hugsanir hans. Og meðan hann lét tónana Iýsa tilfinningum sínum, var hann að hugsa um sak- lausu, en þreklitlu, góðu stúlkuna sfna, sem nú mundi bíða hrædd og kvfðandi næsta dags, þegar samvizka hennar og ást mundi neyða hana til að óhlýðnast föður sínum, ef til vill í fyrsta sinn, og yfirgefa hann einmana og vina- snauðan. Hann þóttist þess fullviss, að þótt hún yrði konan sín, mundi hún aldrei verða glöð í sinni meðan faðir hennar væri henni reiður. Hefði hann ekki vitað þetta, mundi hann fyrir löngu hafa fengið hana til að gift- ast sér; en vissan um þetta hafði dregið úr honum kjark og komið honum tii að bíða heldur og vona, að kringumstæðurnar mundu þó á endanum snúast þeim í vil; en nú höfðu kringumstæðurnar snúist móti þeim, og lengur varð ekki beðið. Hann var staðráðinn í því að ná henni, hvað sem faðir hennar segði, því hann þóttist þess fullviss, að hún yrði þó hamingjusamari hjá sér, þótt það hrygði hana að óhlýðnast föður sínum, heldur en að neyð- ast til að eiga kaupmanninn eftir vilja karlsins. Og eftir því, sem hann varð staðráðnari og ákveðnari í því eina rétta, sem hægt væri að gera, eins og málum nú var komið, eftir því hækkuðu tónarnir og brutust út f fyllingu og

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.