Nýjar kvöldvökur - 01.05.1912, Blaðsíða 22

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1912, Blaðsíða 22
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 118 var honum ógeðfeldara en að gerast trúnaðar- maður sjúklinga sinna og komast í náið hlut- tekningarsamband við þá. Hann vildi einungis vera læknir þeirra, en að öðru leyti ekkert rið- inn við lífskjör þeirra, og úr sögu þeirra jafn- skjótt og þeir væru orðnir heilbrigðir, eða höfðu lokið hérvistardögum sínum, Ress vegna gramdist honum nú, að hann skyldi hafa orð- ið til þess að lofa sjúklingi því, að hafa afskifti af lífskjörum annara, og það á þann hátt, að hann hafði tekið að sér ábyrgð á framtíð ó- þekts unglings. Honum var fyllilega Ijóst, að framvegis hlaut hann að bera umönnun fyrir og hafa eftirlit með þessari stúlku. Hann andvarpaði yfir þessum hugleiðing- um sínum og leit út um vagngluggann; sá hann þá að ekið var gegnum þann hluta borg- arinnar, sem gamall skólabróðir hans bjó í og einhver bezti vinur. Hann kallaði til vagnstjór- ans og bað hann að koma við á tilteknum stað. Eg ætla að leita ráða til Manders, hugsaði hann. Hann hefur heilbrigða dómgreind, og mér er forvitni á að heyra, hvað hann vill ráða mér til að gera, þótt eg viti, að eg verð sjálfur að sfðustu að ákveða, hvernig eg haga mér í þessu vandasama máli. Herra Manders var heima og Anderson var þegar vísað inn á starfstofu hans. Hann hitti þar þennan fræga sáralækni liggjandi endilang- an á legubekknum með bók milli handanna og vindil í munninum. Anægjan skein út úr and- liti hans, að líkindum yfir að fá að hvíla sig dálitla stund, því að maðurinn hafði venjulega mikið að gera. Læknar þessir höfðu verið beztu vinir og mjög samrýndir á skólaárunum, þótt þeir að eðlisfari væru næsta ólíkir, en slíkt tryggir oft meira en losar vináttu. Manders þessi var vel hraustur á sál og líkama, en hann var ekki jafneinrænn og Anderson og lífsskoðun hans var miklu bjartari. »F*að er mér óvænt en sönn gleði \að fá að sjá þig nú, Miles. Eg hefi einmitt hálfrar stundar hvíldartíma. Seztu þarna og talaðu við mig þessa stund.« »Svo lengi má eg varla tefja. Eg er líka komin.i í alvarlegum erindum. Kem til þess að leita ráða til þín.« »Leita ráða til mín, nú er eitthvað ekki með feldu. Eg held þú verðir að fá þér whiskysopa og sódavatn, svo heilinn í þér vinni reglulega og þú fáir litið með fullri dómgreind á hlútina.- Anderson brosti utan við sig og mælti: »Heilann í mér bagar ekki neitt, en mig langar þó til að heyra álit þitt um málefni, nokkurt. Eg er kominn í óþægilega- klípu, og vil leita ráða til þín, hvernig eg eigi að kom- ast úr henni. Petta kom svo snögglega fyrir mig, að eg áttaði mig ekki á því.« »Stærstu viðburðir í lífi manna koma einatt snögglega,« svaraði sáralæknirinn. »Slíkir við- burðir vekja öldugang í hinu tilbreytingalausa lífi; mér er vel við þá.« »Eg hefði gaman af að vita, hvernig þér mundi líka að vera óvænt og á svipstundu gerð- ur að nokkurskonar fósturföður átján ára stúlku, sem þér væri sama sem gefin. Hvernig mund- ir þú taka slíku? Fyrir þessu hef eg orðið, og mér finst þetta enginn smávegis viðburður.« »Mér mundi líka þetta vel, vinur minn,« svaraði ManderS án umhugsunar. »Eg mundi umsvifalaust giftast ungfrúnni og þar með væri vandræðunum lokið, að minsta kosti í bráð. Hann horfði gletnislegu, bláu augunum á Miles, sem þessi orð vöktu hjá ótta og undrun.« »Giftast henni,« sagði hann alveg hissa. »Já, eðlilega, því ekki það, ef hún er heil- brigð og Iítur vel út og er áf góðu fólki kom- in, sýnist mér það sjálfsagt.« »Hún er dóttir konu, sem dó á fátækra- spítalanum, (þegar sárlæknirinti heyrði þetta fór hann að blístra). Pú inátt ekki ntisskilja inig. Hún var ekki ein af þeim, sem venjulegt er að flytja þangað. Hún var efalaust heldri kona, sem hefur lent í fátækt. Hún var nefnd frú Jámes.« »Já, ekki er það glæpamanna nafn, og svo hefur hún líklega verið ekkja?« »Svo sagði hún, og eg hefi enga ástæðu til að ætla, að hún hafi skrökvað því á dánardægri. Hún sagði mér, að hún hefði liaft ofan af fyrir

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.