Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.11.1913, Qupperneq 1

Nýjar kvöldvökur - 01.11.1913, Qupperneq 1
JAKOB ÆRLE6DR. Eftir Fr. Marryat. NÍTJÁNDI KAPITULI. Heimsóknir. Eitt hið fyrsta, sem eg gerði, eftir að eg kom héim var að heimsækja gamla Tuma og segja honum frá því að syni hans liði vel. Eg lét það ganga fyrir því, að fara til Drummonds, þó að mig langaði nú þangað, gekk því ofan að brú og fékk mér bát. Rifjaðist þá upp fyrir niér, hvernig eg hafði oft róið undir öðrum, þegar eg sat á afturbekknum og lét róa undir mér upp ána. Veður var hið fegursta og heitt af sólu. Eg þekti hvert hús, hvern odda — alt voru þetta gamlir kunningjar. Loks sá eg hilla undir hús gamla Tuma, sá spjaldið hans: »Bát- ar gerðir eftir pöntun,« og hálfi báturinn stóð þar enn uppá enda. Eg lét ferjumanninn fara aftur, þvf eg sá að gamli Tumi var að vinnu sinni og hökti í kringum bát á hvolfi. Kona hans sat í hálfa bátnum, sólaði sig og reið net í ákafa. Bæði voru þau svo sokkin niður * vinnu sína, að þau urðu ekkert vör við að eg kom að landi, svo eg læddist inn með hús- inu og faldi mig á bak við bátiun og hlustaði svo á samræðu þeirra. »Eg er núáþví að þessi, bátur verði ald- rei þéttur, þó allir naglar frá Birmingham færu í hann,« sagði gamli Tumi og hætti snöggvast að berja, »þetta er grautfúinn skratti °g heldur ekki nöglum. Nú er eg búinn að setja hér aukafjöl inn í framyfir það umsamda, °g ef eg set ekki aðra hér, flýtur hún aldrei a^ eilífu.« »Nú, settu þá fjöl í hana,« sagði hún. *Eg aetla að gera það, en mér finst eg muni 'skaðast meira en hagnast á þessari að- N.Kv. VII. 11 gerð. Eg fæ það aldrei borgað eins og það lcostar með sjö shillingum og sex pensum.« Og svo fór hann að syngja: »Sjómaðurinn frjáls og frí fleytir sér á öldum, en á landi ótal ský anda vindi köldum. — Þar er enginn okkar frjáls. allir bera hlekk um háls.« »Ekki er nú þetta satt hjá þér,« sagði frú Beaseley. »Var ekki drengurinn okkar pressað- ur í herþjónustu — hvernig geturðu þá talað um að vera frjáls og frí.< Tumi svaraði því syngjandi: »Engin njósnaraugu vaka yfir hverju viki þar, við gleymum þar öllu eins og það var, og ekkert látum á hug vorn taka.« »Nei, það er satt — engin njósnaraugu vaka þar,« sagði hinn; nú getur vel verið að hann liggi dauðveikur eða sár, og ekkert móður- auga vakandi til að gæta hans. En hvar sem hann er, þá man hann eftir okkur og hugsar til okkar og elskar okkur meira en nokkurn- tíma áður.« »Því trúi eg vel,« svaraði Tumi, »ef hann hefur ekki annað að gera. En góður háseti verður nú að hafa hugann við sitt verk, en ekki út um hvippinn og hvappinn. En vittu til, kelli mín, hann kemur heim aftur. Á himnum er engill svo unaðarblíður, með ástúð hann vakir og gætir hans vel.« »Guð gefi það,« sagði ’hún, þurkaði sér um augun með svuntuhorninu sínu og fór aft- 31

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.