Nýjar kvöldvökur - 01.11.1913, Blaðsíða 4

Nýjar kvöldvökur - 01.11.1913, Blaðsíða 4
244 NÝJAR KV0LDVÖKUR. bað mig að tala ögn hærra, en eg svaraði: »Hvaða narraskapur er þetta, Stapleton, það þarf ekki við mig,* Hann tók þá pípuna út úr sér, horfði fram- an í mig og sagði: »Nú, það ert þá þú, Jakob, þekti þig ekki í þessum síðu fötum — hélt þú værir einhver heldri maður, sem vildi fá bát. Eg þarf varla að segja þér að það gleður mig að sjá þig eftir svo Iangan tíma; það er ekki nema mann- leg náttúra. Og hvernig Iíður Tuma? — Og hefurðu talað við Marý?« Retta greiddi mér götuna að umtalsefninu, sem næst mér Iá; eg talaði um ástir þeirraog hvað þeim væri hlýtt hvoru til annars, og sýndi honum fram á, hvað fráleit! það væri af honum að láta Marý altaf dúsa eina heima. Karl kannaðist við þetta og sagði, að þetta spjall hennar við piltana væri ekkert annað en mannleg náttúra. Og hvað það snerti, að Tuma langaði heim til þess að sjá hana aftur, væri heldur ekki annað en mannleg náttúra. En framvegis kvaðst hann skyldi reykja pípu sína heima og halda dátunum frá húsinu. Og svo skyldi eg við hann, fékk mér ann- an bát og lét róa mér upp til Brentford til þess að heimsækja skólameistara. Eg hitti hann í skólastofunni við púltið, sokkinn niður í djúpar hugsanir, en strákarnir létu svo illa, að það hefði verið ærið til að vekja rotaðan sel af svefni. »Hr. Dobbs,« sagði eg og gekk til hans, en hann tók ekki undir; eg hækkaði mig, en það fór á sömu leið. »Kósinus af x-4-ab—z—7» á að koma út,« sagði hann við sjálfan sig, »en eg hef víst reikn- að rangt. Eg verð að byrja aftur,« sagði hann og opnaði púltið, til þess að ná öðru blaði. En á meðan tók eg blaðið af púltinu og faldi það fyrir aftan mig. »En hvað er þetta?«, sagði skólameistari og horfði í kringum sig eftir blaðinu. »það hlýtur að vera go!an,« én í því bili festi hann augu á mér, en eg horfði brosandi á hann. »Nei, hvað sjá augu mín — það er — og þó ekki — jú, víst er það — sonur minn Jakob. Velkominn, margvelkominn,« sagði karl, steig ofan af stólnum og faðmaði mig að sér. »Langt er síðan eg sá þig, sonur minn — lengi hef eg þráð afturkomu þína, og búizt við að þú hefðir liðið skipbrot sem annar Palinúrus. Pú ert kominn aftur og alt er gott. Eg hef fundið son minn, sem eg hafði týnt, eins og faðirinn í dæmisögunni. Nú er alt gott. Pú hefur komizt hjá hættum bardaganna, eldsins og skipbrotanna, og nú getur þú hengt upp föt þín eins og þakkarfórn eins og Hóra- tius.« Undir ræðu þessari höfðu strákarnir raðað sér að mestu í sæti sín og fóru að suða hver í kapp við annan. En þá sagði skólameistari: »Drengir, svo sannarlega skuluð þið hafa frídag í dag, leggið bækur ykkar frá ykkur og farið í friði.« Bækurnar voru þegar látnar aftur og lagð- ar frá sér. Og svo þaut öll hersingin út úr skólastofunni með ópi og skarkala. »Komdu, Jakob, inn í hið allrahelgasta; þar getum við talað saman í næði. Segðu mér hvað þig hefur hent, og eg skal segja þér það sem eg veit um þá, er þú þekkir.' »Fyrst vildi eg mega biðja yður að .gefa mér ögn að borða, því eg er orðinn sársvang- ur,« svaraði eg um leið og við gengum um eldhúsið. »1 sannleika skaltu fá alt sem ertil.Jakob; en eg held nú helzt það sé ekki mikið, því að við ráðskonan höfum verið nú í fjóra daga að kroppa beinin úr lambskrofsparti. Hún er nú ekki heima; en fyrir þína skuld ætla eg nú að dirfast að hnýsast inn í leyndardóma búrsins hennar. Hún kann reyndar að reiðast, en eg býð þá gremju hennar birginn.* Og hann opnaði búrið og rétti mér fram eitt fatið eftir annað með því sem í því var. »Hérna eru tveir harðir mjölsnúðar síðan í gær — falla þér kaldir, harðir snúðar? En bið- um við — hér er eitthvað Ijúffengara — helm- ingur af köldu kálhöfði, sem eru leifar síðan í dag. Og hér er ket, jú, það er ket; en það

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.