Nýjar kvöldvökur - 01.11.1913, Síða 18

Nýjar kvöldvökur - 01.11.1913, Síða 18
258 NYJAR KVÖLDVÖKUR. aði kolli ánægjulega, og leit síðan njósnaraug- um út um svefnherbergisgluggann, sem vissi út að húsabaki. Ekkert sást kvikt þar neðra. Hann stökk upp í gluggann og því næst niður ásvalirnar á neðsta lofti og svo tókst honum að klifrast, líkt og köttur, niður á jafnsléttu. »Svona nú, þá er maður hér,« tautaði hann ánægjulega, »en hvert skal nú?« Hann leit á úrið sitt og sagði: »Klukkuna vantar 5 mínútur í þrjú; hæ, hæ, það stendur þó svei mér vel heima, klukk- an þrjú fer gufubáturinn til Karolinénbad,« — það var fjölsóttur baðstaður upp með fljótinu, hálfa mílu frá setuliðsborginni Ixenstadt, þar sem saga þessi gerist — »þar líður þessi leið- inlegi dagur þó fljótar að skömminni til.« Jager lét efndir fylgja heiti. Hann komst alla leið til gufubátsins eftir stíg, sem lá með fram garðinum, milli borgar- innar og sveitarinnar, án þess að nokkur yrði hans var. Hann komst fljótlega að því, að hvorki of- urstinn hans, né nokkrir aðrir, sem vissu um stofufangelsi hans, tvoru á gufubátnum. Hann hljóp út lausabrúna, út í bátinn og hvarf brátt inn í reykingasalinn, sem var nærri mannauð- ur. Síðan brunaði gufubáturinn af stað upp fljótið. Jager teygði úr sér á legubekknum, fékk sér vindil og tók aðbúa til reykjarhringa eftir venju og var svo sokkinn niður í hringasmíð sína að hann vissi ekki fyr en gufubáturinn var stansaður við bryggjuna í Karolinenbad eftir hálfrar stundar ferð. Hann lét hina gestina fara í land og fór svo sjálfur með þeim síðustu. Á hinni mjóu bryggju var töluverður troðningur af fólki, sumt iðjuleysingjar, sumt baðvistarfólk, þar á meðal þjóuustufólk og nýkomnir gestir, sem ætluðu að fara með bátnum til baka. Jáger lautinant lét hópinn minka á bryggjunni og fór svo síð- ast í land. En — hver þremillinn! Var þetta missýn- ing? Herra trúr! — Á bryggjusporðinum var maður á gangi í bláum einkennisfötum. Lautinantinn þekti hann alt of vel, þennan háa mann, með gráhærða hausinn, strítt yfir- skeggið, og grá eldsnör augu. Það lék enginn vafi á því, að það var of- urstinn hans. Hvað var nú til ráða ? Auðvitað fyrst, að stökkva út í skipið aftur; en það var hægra ort en gjört, því að gufubáturinn var farinn frá bryggjunni. Jáger ■ veifaði hendinni á eftir bátnum, en það kom fyrir ekki. Hvað var nú til bragðs að taka? Stökkva í vatnið og synda burt? Nei, ekki dugði það, því að skvampið myndi koma upp um hann, og þar að auki hafði hann argasta viðbjóð á því að fleygja sér í fljótið. Með mestu angist varð hann að horfa á ofurstann snúa við á bryggju- sporðinum og labba í hægðum sínum á móti sér. »Hamingjan hjálpi mér,« stundi lautinant- inn upp, »Ferschke minn 'góður, bara að eg hefði ekki yfirgefið þig.« í þessum vandræðum kom hann auga á ungfrú nokkra, sem auðsjáanlega var komin með gufubátnum og beið eftir einhverjum. Jáger hentist þangað í tveimur stökkum. »Náðuga ungfrú, eg ætla að hætta á það, að vera svo nærgöngull við yður, að biðja yð- ur að gjöra svo vel og lofa mér að leiða yð- ur hérna upp bryggjuna?* Hún leit kuldalega við honum. »Hver gefur yður rétt til þess, herra minn, að — ?« »Æska mín, náðuga ungfrú, og æska okkar beggja. Eg skil það vel, að yður furðar á hátta- lagi mínu, og bið yður mikillega fyrirgefn- ingar, þar sem eg endurnýja bæn mína. Neyð er enginn [kaupmaður og eg ákalla yður í neyð minni. Segiðmér: Hafið þér nokk- urn tíma orðið að sitja í stofufangelsi í 5 daga samfleytt, í slíku veðri sem nú; en um hvað er eg að spyrja yður! En sjáið þér til, náðuga ungfrú, eg hefi í þessa fimm daga — það er að segja, eg á að sitja heima í 5 daga, en stalst út vegna leiðinda og þarna — sko, þér sjáið manninn þarna í bláu einkennisfötunum, sem eg hræðist miklu meira en Cherúb með

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.