Nýjar kvöldvökur - 01.04.1938, Blaðsíða 7

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1938, Blaðsíða 7
KAIN 53 Kains, eins og hnífsoddur. Hann leit aft- ur til móður sinnar með bæn um lið- veizlu í augnaráðinu. Hún hafði staðið hreyfingarlaus og verið vitni að því, sem fram fór á milli feðganna, og ótti og sárs- au'ki skein út úr svip hennar. — Adam, hvíslaði hún og rétti fram hendurnar, en hún komst ekki lengra, því maður hennar æpti: — Bölvuð veri sú stund, er þú komst inn í líf mitt. Öll ógæfa er af þínurn völdum. — Reyndu ekki að biðja syni þínum vægðar, því að það eykur aðeins reiði mína. Hún lét hendurnar falla niður og lötr- aði burt, hrædd og niðurlút. Sonur henn- ar horfði á eftir henni, og það var sem eitthvað hryndi til grunna innst inni í vitund hans. Honum fannst hann ekki kannast við hana lengur. — Hún var ekki lengur móðir hans. Hún hafði yfirgefið hann, þegar honum reið mest á hjálp hennar. Þau vonbrigði og einstæðingstil- finningin, sem þeim fylgdi voru sárari en svipuhöggin, sem skullu á baki hans. Hann grét ekki eða baðst vægðar, heldur beit á jaxlinn. Hann var ekki lengur barn, heldur maður, sem rúmar ekkert annað í sál sinni en hatur til lífsins fyrir það eitt að vera til, — og er dæmdur til þess að lifa allt sitt líf einn, aleinn.--- Sólin hné til viðar, og nóttin skall á, dimm og heit og þung eins og sorgin. Kain skreiddist inn í hvílu sína. Hann var máttfarinn og brennandi sársaukinn í baki hans varnaði honum svefns. Hann hugsaði ekki, hann lá bara kyrr og starði svefnvana augum út í myrkrið. En ómur af mannamáli vakti allt í einu vitund hans. Foreldrar hans voru að tala saman í hvílu sinni, skammt frá honum. Hann varð allur að eftirtekt, en þó heyrði hann ekki nema lítið af samtali þeirra. Faðir hans ávítaði, móðir hans grét. Þau voru að tala um eitthvað, sem hafði gerst, langt, langt í burtu. Þá hafði allt verið öðruvísi og betra en nú. Engin sorg, sí- felld gleði og hamingja. En svo hafði eitt- hvað komið fyrir, eitthvað hræðilegt. Hvað það var gat hann ekki heyrt, en með því hafði óhamingjan komið inn í líf þeirra, og dæmt þau til þess að lifa ein og yfirgefin, á þessum fjarlæga og eyði- lega stað. Þessi vitneskja, þótt lítil væri, styrkti þann grun hans, að foreldrar hans byggju yfir einhverju leyndarmáli, sem þau vildu ekki að hann kæmist að. Faðir hans hafði ekki sagt honum satt. Einhversstað- ar langt úti í þessum dularfulla heimi voru menn, sem lifðu lífi sínu á líkan hátt og hann og foreldrar hans. Seinna, þegar honum yxi þróttur, ætlaði hann að leita uppi lönd þeirra og bústaði og fá lausnir á öllum þeim óteljandi ráðgátum, sem lífið var svo fullt af. Þangað til varð hann að bíða, og láta sér nægja þessar ófullkomnu, og ef til vil vafasömu upp- lýsingar, sem þó höfðu megnað að varpa svolitlum ljósgeisla inn í myrkrið, sem grúfði yfir hugarheimi hans. III. Tíminn leið, og bræðurnir urðu full- vaxta menn. Þeir voru jafn ólíkir í sjón og raun og dagur og nótt. Kain var stór- skorinn. Hár hans og skegg var hvort- tveggja svart og strítt. Augu hans voru ætíð full af myrkri og kulda. Hann brosti aldrei. Drættirnir í andliti hans voru harðneskjulegir og fráhrindandi. Abel var aftur á móti hár og beinvax- inn, eins og pálmarnir, sem uxu þar í grennd. Andlitsdrættir hans voru fín- gerðir. Augu hans síkvik af lífsgleði. Hár hans og skegg var með hrafnsvörtum gljáa og fallega liðað. Hann var æfinlega glaður og ánægður. Allt torskilið og dul- arfullt lét hann sigla sinn sjó, því að öll \

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.