Nýjar kvöldvökur - 01.04.1938, Blaðsíða 45

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1938, Blaðsíða 45
BOKMENNTIR. Gráskinna I—IV. Útgefendur Sigurður Nordal og Þórbergur Þórðarson. Bókaverzl- un Þorsteins M. Jónssonar. Akur- eyri 1928—1936. Á undanförnum árum hefir allmikið verið prentað af þjóðsagnasöfnum- Ég minnist í svipinn Rauðskinnu, Gráskinnu, Grímu, Vestfirzkra sagna og sagna af Snæfellsnesi af hinum yngri sögnum, þjóðsagna Sigfúsar Sigfússonar, Olafs Davíðssonar og endurprentunar á þjóð- sögum Jóns Árnasonar af hinum eldri söfnum. Auk þessara eru mörg söfn smærri, og ýmis rit í svipuðum stíl, sagna- þættir og endurminningar. Allt þetta ber því ljóst vitni, að þjóðin er sólgin í þjóð- sagnir nú sem fyrri, og er það sízt að lasta. Hinsvegar hlýtur sú spurning að vakna, hvort ekki sé of mikið sett á mark- aðinn af þessari tegund bókmennta, hvort ekki sé farið að ganga of nærri efninu og í þessa útgáfu sé komin „spekulation“. Þ. e. útgefendurnir farnir að nota sér þá tízkuöldu, sem virðist ganga yfir með kaup og lestur þjóðsagna. Þjóðsagnir eru sérstæðar bókmenntir. Naumlega verður sagt um nokkra bók- menntagrein, að hún sé jafngreinilega sprottin frá hjartarótum íslenzku þjóðar- innar. Söguefnin eru margvísleg, en öll eiga þau rót sína að rekja til einhverra atburða daglega lífsins, eða þátta í skap- höfn, hugsanaferli eða trú alþýðunnar, sem mótast hafa í sambúð hennar við landið og náttúru þess. Oft eru sagnaefn- in að vísu rýr, en slingur sögumaður hef- ir megnað að blása í þau þeim lífsanda, að sagan geymist, en gleymist ekki þeim, er hana heyrðu. Hver þjóðsaga opnar of- urlitla geil, til að skyggnast inn um í líf og hugsunarhátt alþýðunnar. Ef vér litumst um í hinum nýrri þjóð- sagnasöfnum, og jafnvel hinum eldri líka, þá rekumst við þar á fjölda sagna, sem varla geta kallast þjóðsagnir. Þær eru um fyrirbwði, sýnir, heyrnir, hug'ooð, drauma eða einhverskonar dulskynjamr, sem ekki verða skýrðar með hinum vanalega skilningi vorum á hlutum þeim, er kringum oss eru. Margt þessara sagna á heima í viðfangsefnum sálarrannsókn- armanna, en verða fyrst eiginlegar þjóð- sagnir, þegar fjarlægðin hefir vafið þær nýjum reifum, aukið við og fellt niður, til þess að gera allt sem sögulegast. Um það má ætíð deila, hvort þjóðsagnasöfnin skuli flytja margt af slíkum nútíma sög- um, en ég fyrir mitt leyti kysi þær held- ur á brott úr þeim. Þessar sagnir eru góðar á sína vísu, en þær eiga naumlega heima í þjóðsögum. Þá hefir það einnig orðið tízka sumra safnanda að blanda sögurnar meira eða minna sögufróðleik um ártöl og ættir, eftir kirkjubókum og' öðrum heimildum. Þetta er ágætt, þegar semja á sannsögulega þætti, en í þjóðsög- unni sjálfri á það ekki heima- Hún verðui svo bezt sögð, að þar renni frásagnar- straumur sögumannsins ómengaður og sem minnst breyttur. Margir skrásetjarar hafa spillt góðum söguefnum með því að endursegja þær sjálfir. En þótt margir geti skrásett sögu, er hitt á fárra færi að segja sögu, svo að vel fari. En þá er þjóð- sagan jafnan bezt, er hún birtist í einfald- leik íslenzks alþýðumáls óblandin fræði- legum fleygum og lærðra manna máli. Fyrir þessum atriðum hefir próf. Sig- urður Nordal gert ljósa grein í formála Gráskinnu. Formáli sá er ritaður bæði af smekkvísi og skilningi á eðli þjóðsagn- anna, eins og vænta mátti af höfundi hans. Hygg ég að allir skrásetjendur þjóð- 12*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.