Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Blaðsíða 6
N. Kv.
Halldór Stefánsson:
Saga Möðrudals á Efra-Fjalli.
(Niðurlag).
TJtaníarir.
Tvisvar á búskaparárum sínum fór
Stefán utan til annarra landa og hafði
einnig farið utan áður en hann hóf búskap
sem fyrr segir.
Fyrri förina fór hann til Noregs og Dan-
merkur; það var árið 1898, þegar fisk-
veiðasýningin var í Bergen. Var Stefán á
sýningunni, en ferðaðist einnig til Dan-
merkur, og mun þá hafa tekið vel eftir
búnaðarháttum. Hann kom þá heim með
hestahrífu og heyskurðarvél og fleiri vélar
til búþæginda.
Síðari förina fór hann til Vesturheims;
það var árið 1905. Hann mun hafa ætlað
að hafa þar lengri dvöl en raun varð á.
Fékk hann Jóni syni sínum, er þá var far-
inn að búa í Víðidal, ábúð á nokkmm
hluta jarðarinnar í hendur til 5 ára, en
kom aftur að ári liðnu. Lét Jón þegar af
hendi ábúð sína, en fékk sér aðrar staðfest-
ur þangað til Víðidalur losnaði úr ábúð, er
hann hafði einnig byggt til 5 ára.
I för sinni til Vesturheims ferðaðist
Stefán um flestar byggðir íslendinga í
Kanada.
Banadægur. — Börn.
Stefán í Möðrudal andaðist 3. febrúar
1916, en Arnfríður 17. ágúst rúmi ári síð-
ar. Þau höfðu eignazt 8 böm alls; tvö dóu
í æsku, en 6 komust til þroska:
1. Aðalbjörg, g. Jóni Helgasyni prentsm.-
stj., Rvík.
2. Sigurður, fór til Vesturheims.
3. Jón Aðalsteinn.
4. Einar.
5. María.
6. Hróðný.
Fjögra hinna síðasttöldu verður enn
getið.
Utan hjónabands átti Stefán tvö böm:
Hauk listmálara; móðir hans hét Anna
Guðmundsdóttir og fór til Vesturheims;
Guðlaugu; hennar móðir var Þómnn Mar-
teinsdóttir.
Ábúðin 1916—1919.
Vorið eftir dauða Stefáns gekk ábúðin
til Einars sonar hans. Næsta vor kom til
búlags með honum Sigurður mágur hans
Haraldsson, er var kvæntur Hróðnýju
systur hans, og enn ári síðar kom til bú-
lags með þeim Páll Vigfússon, er kvæntur
var Maríu systur Einars.
Á þessum árum byggðu þeir mágar
steinhús í stað baðstofunnar gömlu.
Jón A. Steíánsson og Þórunn
V ilhjálmsdóttir.
Vorið 1919 keypti Jón Aðalsteinn
Stefánsson (f. 22/2 1880 að Ljósavatni)
% hluta jarðarinnar og fluttist þangað frá
Víðidal; þeir mágar, Einar og Páll, tóku
aftur ábúð í Víðidal, en Sigurður hafði
ábúð í Möðrudal í nokkur ár með Jóni og
fluttist búferlum að Rangalóni, er hann
fór þaðan. Kaupverð % hluta jarðarinnar
var 30. þús. krónur.
Kona Jóns er Þórunn Guðríður BjÖrg
Vilhjálmsdóttir Oddsen alþm. og bónda á